Fara í efni

Rekstrarstyrkur til Tækniminjasafns Austurlands 2027

Málsnúmer 202610166

Vakta málsnúmer

Byggðaráð Múlaþings - 203. fundur - 27.10.2026

Fyrir liggur erindi frá Tækniminjasafni Austurlands með beiðni um rekstrarstyrk fyrir árið 2027.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings samþykkir að rekstrarstyrkur til Tækniminjasafns Austurlands fyrir árið 2027 verði áfram 13 milljónir króna sem rúmast innan samþykktrar rammaáætlunar sveitarfélagsins.
Deildarstjóra menningarmála falið að gera nýjan samning við safnið sem mun áfram gilda til eins árs.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?