Fara í efni

Byggðaráð Múlaþings

203. fundur 27. október 2026 kl. 08:30 - 11:40 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Berglind Harpa Svavarsdóttir formaður
  • Eiður Ragnarsson varaformaður
  • Þórhildur Katrín Stefánsdóttir aðalmaður
  • Ásrún Mjöll Stefánsdóttir aðalmaður
  • Lárus Bjarnason aðalmaður
  • Hólmfríður Rut Einarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri
  • Ingvar Rafn Stefánsson sviðsstjóri fjármála
  • Guðlaugur Sæbjörnsson starfsmaður
  • Sigrún Hólm Þórleifsdóttir sviðsstjóri mannauðs og þjónustu
Fundargerð ritaði: Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri

1.Fjármál 2026

Málsnúmer 202601001Vakta málsnúmer

Sveitarstjóri, sviðsstjóri fjármála og sviðsstjóri mannauðs og þjónustu fóru yfir og kynntu mál er varða rekstur og fjármál sveitarfélagsins.

2.Fjárhagsáætlun Múlaþings 2027 til 2030

Málsnúmer 202606136Vakta málsnúmer

Sveitarstjóri og sviðsstjóri fjármála fóru yfir stöðu við vinnu fjárhagsáætlunar Múlaþings 2027 og þriggja ára áætlunar 2028 til 2030 á grundvelli rammaáætlunar sem samþykkt var af sveitarstjórn 9. september 2026.
Byggðaráð brýnir fyrir stjórnendum sveitarfélagsins að rýna vel í fjárhagsáætlun 2027 til að leita leiða til hagræðingar í rekstri enda ljóst að það verður áskorun að ná góðri rekstrarniðurstöðu í núverandi verðbólgu- og kjaraumhverfi.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

Málið áfram í vinnslu.

3.Félagsheimili á Fljótsdalshéraði

Málsnúmer 202411218Vakta málsnúmer

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs óskar eftir því að byggðaráð taki til umfjöllunar viðhaldsstöðu félagsheimila á Fljótsdalshéraði og óskar eftir fjármunum í fjárhagsáætlun 2027 til málaflokksins.
Málið áfram í vinnslu.

4.Atvinnustefna Múlaþings

Málsnúmer 202610128Vakta málsnúmer

Á fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 var byggðaráði falið að hefja vinnu við gerð atvinnustefnu fyrir Múlaþing.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð felur sveitarstjóra að hefja vinnu við gerð atvinnustefnu Múlaþings í samræmi við umræður á fundinum. Málið verður áfram í vinnslu.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.


5.Samþykkt um stjórn Múlaþings, breytingatillaga

Málsnúmer 202610127Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tillaga að breytingum á Samþykkt um stjórn Múlaþings og viðaukum við hana auk minnisblaðs um breytingarnar.
Yfirlögfræðingur Múlaþings Aron Thorarensen mætir á fundinn undir þessum lið til að fylgja málinu eftir.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings samþykkir að vísa fyrirliggjandi tillögu að breytingum á samþykkt um stjórn Múlaþings og viðaukum við hana til fyrri umræðu í sveitarstjórn.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

6.Rekstrarstyrkur til Tækniminjasafns Austurlands 2027

Málsnúmer 202610166Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Tækniminjasafni Austurlands með beiðni um rekstrarstyrk fyrir árið 2027.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings samþykkir að rekstrarstyrkur til Tækniminjasafns Austurlands fyrir árið 2027 verði áfram 13 milljónir króna sem rúmast innan samþykktrar rammaáætlunar sveitarfélagsins.
Deildarstjóra menningarmála falið að gera nýjan samning við safnið sem mun áfram gilda til eins árs.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

7.Loftbrú 2026

Málsnúmer 202610190Vakta málsnúmer

Innviðaráðuneytið birti frétt á heimasíðu sinni 23.10.2026 þar sem boðaðar eru breytingar á fyrirkomulagi Loftbrúar. Framvegis verður afsláttur 7.000 krónur á hvern fluglegg í stað 40% líkt og verið hefur fram að þessu. Síðan þá hefur innviðaráðherra boðað að styrkurinn verði hækkaður í 9.000 krónur á hvern fluglegg.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:

Byggðaráð Múlaþings mótmælir harðlega boðuðum breytingum á Loftbrú, sem fela í sér að 40% afslætti af flugfargjöldum verði skipt út fyrir fasta niðurgreiðslu að fjárhæð 7.000 eða 9.000 krónur á hvern fluglegg.

Innanlandsflug er nauðsynlegur þáttur í samgöngum fyrir íbúa Múlaþings og annarra byggðarlaga fjarri höfuðborgarsvæðinu. Langar vegalengdir, vetraraðstæður og langur ferðatími á landi gera flug oft að eina raunhæfa kostinum til að sækja nauðsynlega þjónustu á höfuðborgarsvæðið.

Byggðaráð telur að ráðleggingar um að bóka flug með lengri fyrirvara taki ekki nægilega mið af aðstæðum þeirra sem þurfa að sækja nauðsynlega þjónustu utan heimabyggðar. Íbúar ráða oft litlu um tímasetningu rannsókna, aðgerða eða viðtala hjá sérfræðingum. Þá geta veikindi, áföll og brýn fjölskylduerindi kallað á ferðalög með skömmum fyrirvara.

Byggðaráð leggur áherslu á að ríkið beri ábyrgð á að tryggja íbúum raunhæft aðgengi að þeirri þjónustu sem það veitir ekki í heimabyggð. Samþjöppun opinberrar þjónustu á höfuðborgarsvæðinu má ekki leiða til sífellt meiri ferðakostnaðar fyrir íbúa landsbyggðarinnar. Þá er mikilvægt að ríkisstjórnin setji og fjármagni byggðarstefnu sem miðar að því að halda blómlegri byggð í öllu landinu.

Með fastri 7.000 til 9.000 króna niðurgreiðslu bera heimilin að fullu kostnað af hækkunum flugfargjalda og stuðningurinn rýrnar hlutfallslega eftir því sem verð hækkar. Slík breyting felur því í sér aukna kostnaðarbyrði fyrir íbúa landsbyggðarinnar og dregur úr raunverulegu aðgengi þeirra að nauðsynlegri þjónustu.

Byggðaráð leggur jafnframt áherslu á að stjórnvöld efli og fjármagni uppbyggingu opinberrar þjónustu á landsbyggðinni. Tryggja þarf að íbúar hafi sem bestan aðgang að heilbrigðisþjónustu, stjórnsýslu og annarri nauðsynlegri þjónustu í heimabyggð, þannig að draga megi úr þörf fyrir kostnaðarsamar ferðir til höfuðborgarsvæðisins.

Byggðaráð Múlaþings krefst þess að innviðaráðherra falli frá breytingunum, viðhaldi að minnsta kosti 40% afslætti og tryggi fjármögnun Loftbrúar í samræmi við raunverulega nýtingu. Þá fer byggðaráð fram á að innanlandsflug verði skilgreint sem almenningssamgöngur.

Byggðaráð felur sveitarstjóra að koma bókuninni á framfæri við innviðaráðherra ásamt stjórn Sambands sveitarfélaga á Austurlandi.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

8.Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026

Málsnúmer 202601171Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 8. október 2026.
Lagt fram til kynningar.

9.Samráðsgátt. Viðmið um sjálfbæra þróun sveitarfélaga

Málsnúmer 202610092Vakta málsnúmer

Fyrir liggur í samráðsgátt frá innviðaráðuneytinu mál nr. S-191/2026, Viðmið um sjálfbæra þróun sveitarfélaga. Frestur til að skila inn umsögn er til og með 13. nóvember 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð felur sveitarstjóra að senda inn umsögn ráðsins í samræmi við umræður á fundinum.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

Fundi slitið - kl. 11:40.

Getum við bætt efni þessarar síðu?