Fara í efni

Körfuknattleiksdeild Hattar - beiðni um styrk

Málsnúmer 202610230

Vakta málsnúmer

Fjölskylduráð Múlaþings - 173. fundur - 02.11.2026

Fyrir liggur erindi frá Ásthildi Jónasdóttur, fyrir hönd körfuknattleiksdeildar Hattar, dagsett 28. október 2026, þar sem óskað er eftir fjárhagsstyrk til reksturs deildarinnar.
Fjölskylduráð samþykkir að veita körfuknattleiksdeild Hattar styrk að fjárhæð 3,5 milljónir króna á árinu 2026. Ráðið vinnur nú að heildarendurskoðun samninga við íþróttafélög í Múlaþingi sem áætlað er að taki gildi fyrir árið 2028 og verður ákvörðun um gildistíma fyrirhugaðra samninga tekin í tengslum við þá vinnu.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?