Fara í efni

Fjölskylduráð Múlaþings

173. fundur 02. nóvember 2026 kl. 09:00 - 12:00 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Jónína Brynjólfsdóttir formaður
  • Herdís Magna Gunnarsdóttir aðalmaður
  • Björg Eyþórsdóttir aðalmaður
  • Erlingur Hjörvar Guðjónsson aðalmaður
  • Jóhann Hjalti Þorsteinsson aðalmaður
  • Guðný Lára Guðrúnardóttir aðalmaður
  • Erla Gunnlaugsdóttir varamaður
  • Helgi Hlynur Ásgrímsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Sigurbjörg Hvönn Kristjánsdóttir sviðsstjóri menntunar og lýðheilsu
  • Anna Alexandersdóttir sviðsstjóri velferðar
  • Stefanía Malen Stefánsdóttir grunnskólafulltrúi
  • Marta Wium Hermannsdóttir leikskólafulltrúi
  • Ingibjörg Jónsdóttir verkefnastjóri á fjölskyldusviði
Fundargerð ritaði: Ingibjörg Jónsdóttir verkefnastjóri velferðar á fjölskyldusviði
Áheyrnarfulltrúi grunnskóla, Agla Þorsteinsdóttir, sat liði 1, 2 og 4. Áheyrnarfulltrúar grunnskóla Þórunn Hrund Óladóttir og Karen Sveinsdóttir sátu liði 1 og 2. Áheyrnarfulltrúar leikskóla, Hugrún Malmquist Jónsdóttir, Rósa Dóra Sigurðardóttir og Ása Karen Hannibalsdóttir, sátu liði 2-5. Sóley Þrastardóttir, áheyrnarfulltrúi tónlistarskóla, sat liði 2 og 4. Viðar Jónsson, skólastjóri Egilsstaðaskóla, fylgdi eftir máli skólans í lið 1. Jóna Björg Sveinsdóttir, Sigríður Herdís Pálsdóttir, Þórunn Hrund Óladóttir, Ásgrímur Ingi Arngrímsson og Kolbrún Nanna Magnúsdóttir fylgdu eftir sjálfsmatsskýrslum sinna leikskóla í lið 3.

1.Skólaráð Egilsstaðaskóla 2026-2027

Málsnúmer 202610002Vakta málsnúmer

Fyrir liggur fundargerð skólaráðs Egilsstaðaskóla frá 30. september 2026. Viðar Jónsson, skólastjóri Egilsstaðaskóla, fór yfir fundargerðina og gerði grein fyrir helstu atriðum sem þar komu fram.
Lagt fram til kynningar.

2.Gjaldskrár 2027

Málsnúmer 202610227Vakta málsnúmer

Fyrir liggja tillögur að gjaldskrám fyrir fræðslumál, frístundaþjónustu og íþróttamannvirki Múlaþings fyrir árið 2027.
Fjölskylduráð samþykkir gjaldskrár fyrir leikskóla, grunnskóla, tónlistarskóla, frístundaþjónustu og íþróttamannvirki fyrir árið 2027, með 2,5% hækkun frá gildandi gjaldskrám og vísar þeim til sveitarstjórnar til staðfestingar.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

3.Sjálfsmatsskýrsla leikskóla, innra mat skólaárið 2025-2026

Málsnúmer 202609263Vakta málsnúmer

Fyrir liggja til kynningar sjálfsmatsskýrslur leikskóla Múlaþings fyrir skólaárið 2025-2026. Leikskólastjórar og aðrir fulltrúar leikskóla í Múlaþingi mættu á fundinn undir þessum lið og kynntu sjálfsmatsskýrslur leikskólanna.
Skýrslurnar að undanskilinni sjálfsmatsskýrslu Bjarkatúns, voru lagðar fram til kynningar. Fjölskylduráð þakkar fyrir greinargóða kynningu á sjálfsmatsskýrslunum og lýsir ánægju með þann faglega metnað og vilja til umbóta sem þar kemur fram.

4.Íslenska æskulýðsrannsóknin

Málsnúmer 202610004Vakta málsnúmer

Þórunn Ólafsdóttir, verkefnastjóri á fjölskyldusviði, kynnti helstu niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar (ÍÆ) fyrir árið 2026, sem Menntavísindasvið Háskóla Íslands framkvæmir fyrir mennta- og barnamálaráðuneytið.
Fjölskylduráð þakkar Þórunni Ólafsdóttur fyrir góða og upplýsandi kynningu á niðurstöðum rannsóknarinnar. Ráðið leggur áherslu á mikilvægi þess að nýta niðurstöðurnar til að efla áframhaldandi forvarnastarf í Múlaþingi.

5.Reglur leikskóla í Múlaþingi

Málsnúmer 202610228Vakta málsnúmer

Fyrir liggja tillögur að uppfærðum reglum um leikskóla Múlaþings, með fyrirhugaðri gildistöku 1. janúar 2027.
Fjölskylduráð samþykkir uppfærðar reglur um leikskóla Múlaþings og vísar þeim til sveitarstjórnar til staðfestingar.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

6.Körfuknattleiksdeild Hattar - beiðni um styrk

Málsnúmer 202610230Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Ásthildi Jónasdóttur, fyrir hönd körfuknattleiksdeildar Hattar, dagsett 28. október 2026, þar sem óskað er eftir fjárhagsstyrk til reksturs deildarinnar.
Fjölskylduráð samþykkir að veita körfuknattleiksdeild Hattar styrk að fjárhæð 3,5 milljónir króna á árinu 2026. Ráðið vinnur nú að heildarendurskoðun samninga við íþróttafélög í Múlaþingi sem áætlað er að taki gildi fyrir árið 2028 og verður ákvörðun um gildistíma fyrirhugaðra samninga tekin í tengslum við þá vinnu.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

7.Íþrótta og tómstundastyrkir Múlaþings, seinni úthlutun 2026

Málsnúmer 202609169Vakta málsnúmer

Fyrir liggja 13 styrkbeiðnir í síðari úthlutun íþrótta- og tómstundastyrkja Múlaþings árið 2026. Umsóknarfrestur var til og með 15. október 2026. Sótt er um samtals 4,2 milljónir krónur en 1,5 milljónir krónur eru til úthlutunar.
Fjölskylduráð leggur til að eftirfarandi verkefni verði styrkt:
1. Bætt öryggi í fimleikastarfi Hattar, umsækjandi Fimleikadeild Hattar, 235.000 krónur.
2. Fjallahjólastígur á Seyðisfirði, umsækjandi Ingvi Örn Þorsteinsson, 185.000 krónur.
3. Hjólabraut (Pump Track) á Borgarfirði eystri, umsækjandi Árni Magnús Magnússon, 305.000 krónur.
4. Krakkahelgi Freyfaxa, umsækjandi Hestamannafélagið Freyfaxi, 105.000 krónur.
5. Námskeiðaröð Neista, umsækjandi Kolbrún Ósk Austmann fyrir hönd Neista, 185.000 krónur.
6. Skapandi útiverur, umsækjandi Náttúruskólinn, félagasamtök, 135.000 krónur.
7. Stórmót í frisbígolfi í Selskógi, umsækjandi Glúmur Björnsson, 245.000 krónur.
8. Uppbygging dans og fitness salar í Fellabæ, umsækjandi Auður Vala Gunnarsdóttir, 105.000 krónur.

Fjölskylduráð þakkar fyrir allar umsóknirnar og óskar umsækjendum velfarnaðar.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

8.Skýrsla sviðsstjóra fjölskyldusviðs

Málsnúmer 202512222Vakta málsnúmer

Fyrir liggur skýrsla sviðstjóra menntunar og lýðheilsu.
Lagt fram til kynningar

Fundi slitið - kl. 12:00.

Getum við bætt efni þessarar síðu?