Fara í efni

Erindi til heimastjórnar Djúpavogs frá Fossárdal

Málsnúmer 202610255

Vakta málsnúmer

Heimastjórn Djúpavogs - 75. fundur - 05.11.2026

Fyrir liggur erindi frá Hafliða Sævarssyni og Guðnýju Grétu Eyþórsdóttur, bændum í Fossárdal, varðandi upprekstrarland á Hálsströndinni.
Inn á fundinn undir þessum lið kemur Stefán Aspar Stefánsson, verkefnastjóri umhverfismála hjá Múlaþingi.
Heimastjórn þakkar Hafliða Sævarssyni og Guðnýju Grétu Eyþórsdóttur erindið og samþykkir að veita þeim beitarrétt á landi sveitarfélagsins innan og ofan girðingar á Hálsströnd gegn fjallskilum.
Starfsmanni heimastjórnar og verkefnastjóra umhverfismála falið að ganga frá samningi þar að lútandi.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Gestir

  • Stefán Aspar Stefánsson
Getum við bætt efni þessarar síðu?