Málsnúmer 202209244Vakta málsnúmer
Framkvæmdir
Gerð gangstétta við Markarland gengur vel og lýkur á næstu dögum. Í framhaldi tekur við frágangur.
Öxi var hefluð á verstu köflunum í vikunni og í hana borið. Á meðan veðurblíðan tollir ætti hún að vera með besta móti. Eftirtektarverð umfjöllun um veginn var á RÁS 1 í þættinum Víðs vegar, 29. október síðastliðinn, þar sem margir Djúpavogsbúar voru teknir tali um málefni Axarvegar.
Byrjað var að grafa fyrir grunn á Björgunarsveitarhúsinu í Víkurlandinu í vikunni.
Menning
Dagar myrkurs komu og fóru í liðinni viku. Samráðshópur Cittaslow sá um að sanka saman viðburðum og setja saman auglýsingu. Þátttaka var almennt góð og þorpið fullt af lífi og fjöri.
Höfnin
Hávaðamæling hófst í Djúpavogshöfn 26. október.
Viðgerðir eru framundan á hafnarsvæðinu á bakvið Fiskmarkaðinn. Þar verður keyrt í efni og slétt úr.
Langabúð
Umsóknarfrestur í rekstur Löngubúðar rann út 3. nóvember. Málið verður tekið fyrir á næsta byggaráðsfundi Múlaþings 17. nóvember.
Bókasafn Múlaþings Djúpavogi
Verið er að ganga frá ráðningu á bókasafninu. Þegar það er frágengið kemur til með að opnunartíminn verði þriðjudaga til fimmtudaga klukkan 15 til 18.
Þjónustumiðstöðin
Smíði portsins við þjónustumiðstöð Djúpavogs er lokið.
Íþróttamiðstöð Djúpavogs
Gufan í sundlaug Djúpavogs er komin og verið er að vinna í uppsetningu hennar. Ný lofttræsting og hitari fyrir sundlaugina eru komin til landsins og vonandi klárast uppsetningin á báðu fljótlega svo að sundlaugin geti opnað sem fyrst.
Djúpavogskirkja
Halldór Elías Guðmundsson hefur hafið störf í Djúpavogskirkju sem djákni og verður með aðsetur á Djúpavogi. Hann mun koma til með að sinna fermingarfræðslu, barna- og æskulýðsstarfi og guðþjónustuhaldi. Íbúar eru hvattir til að fylgjast með á facebook-síðu Djúpavogskirkju. Öllum er velkomið að setja sig í samband við Halldór Elías. Hann hefur síma 893-6687 og netfangið halldor.elias@kirkjan.is
Fulltrúi sveitarstjóra á Djúpavogi sótti ráðstefnu AECO til Ósló í lok október síðastliðinn. Meðfram fulltrúastarfinu sinnir starfsmaður markaðsmálum hafna Múlaþings er varðar málefni skemmtiferðaskipa.
Íbúar eru hvattir til að mæta á íbúafund heimastjórnar 17. nóvember næstkomandi, klukkan 17 á Hótel Framtíð.
Heimastjórn þakkar Inga Ragnarssyni og Ólafi Björnssyni upplýsandi yfirferð.
Heimastjórn fagnar frumkvæðinu og þeim áhuga sem léninu djupivogur.is er sýndur.
Starfsmanni heimastjórnar er falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.