Fyrir liggur erindi frá Antoni Helga Loftssyni, framkvæmdastjóra Íþróttafélagsins Hattar, dagsett 3. nóvember 2026, þar sem óskað er eftir viðræðum um endurskoðun samstarfssamnings félagsins við Múlaþing með það að markmiði að auka fjárhagslegan stuðning við félagið. Í erindinu er lögð áhersla á að tryggja stöðugleika í íþróttastarfi, jafnt aðgengi barna að hreyfingu, faglega stjórnun og gagnsæja ráðstöfun opinbers fjár. Anton Helgi mætti á fund fjölskylduráðs til að fylgja erindinu eftir og gera nánari grein fyrir óskum félagsins.
Fjölskylduráð þakkar Antoni Helga, framkvæmdastjóra Íþróttafélagsins Hattar, fyrir komuna á fundinn og fyrir greinargóða kynningu á erindinu. Fjölskylduráð vísar erindinu til vinnu við endurskoðun samstarfssamnings Múlaþings og Íþróttafélagsins Hattar en sú vinna hefst formlega í upphafi árs 2027.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.