Múlaþing í samstarfi við Neista, Huginn og fimleikadeild Hattar býður upp á mismunandi fjölskyldudagskrá á þjóðhátíðardag Íslendinga, 17. júní 2023.
Egilsstaðir
10:00 - 14:00 Blöðrusala Meistaraflokks Hattar í knattspyrnu kvenna verður í Hettunni við Vilhjálmsvöll.
10:30 Hátíðarmessa fyrir alla fjölskylduna. Prestur Sigríður Rún Tryggvadóttir. Kór Egilsstaðakirkju syngur. Organisti Torvald Gjerde.
11:00 Skrúðganga gengið verður frá Egilsstaðakirkju, Tjarnarbrautina og inn í Tjarnargarðinn við Safnahúsið. Lúðrasveit Fljótsdalshéraðs leiðir skrúðgönguna ásamt fánaberum.
Dagskrá í Tjarnargarðinum
11:20 Lúðrasveitin endar skrúðgönguna með tónlistaratriði.
11:30 Fimleikasýning í Tjarnargarðinum.
11:30 – 12:30 Móttaka fyrir skúlptúrasamkeppnina, þemað í ár er Dreki. Börn fædd 2011-2018 geta tekið þátt.
11:30 – 14:15 Skemmtilegt í garðinum, hoppukastalar, andlitsmálun, hestar frá Finnsstöðum, Sjoppa – Candy Floss, popp, pylsur og fleira góðgæti.
13:00 Hátíðardagskrá á sviðinu í Tjarnargarðinum:
- Hátíðarræða
- Tónlistaratriði
- Fjallkona
- Árleg viðurkenning Rótarý
- Leikfélagið brot úr Gulleyjunni
- Verðlaunaafhending skúlptúra samkeppninnar
- Tónlistaratriði
Minjasafn Austurlands
Frítt inn í tilefni dagsins!
Sumarsýningin Ferðalög fyrr á tímum formlega opnuð kl. 14:30.
21:00 Lifandi Tónlist: Øystein & Sunniva Gjerde á Askur Taproom
Djúpivogur
14:00 Sápubolti og vatnsrennibraut á Neistasvæðinu.
- Grill og karókí á pallinum.
- Leikur í Djúpavogsdeildinni, sigurlið síðasta árs FMD keppir við Vigdísi Finnboga.
Seyðisfjörður
10:00 Blómsveigur lagður á leiði Björns Jónssonar frá Firði.
11:00 17. júní hlaup fyrir 6-12 ára hressa krakka. Mæting í Hafnargarðinn, skráning á staðnum og verðlaun í boði.
13:00 Skrúðganga frá Sólveigartorgi að Seyðisfjarðarkirkju þar sem tekur við hátíðardagskrá í garðinum:
- Hátíðarmessa
- Fjallkonan
- Hátíðarávarp
- Tónlistarflutningur
- Huginsverðlaun
- Andlitsmálning
Eftir hátíðardagskrá tekur við gleði og gaman á Sólveigartorgi: Babúbílar, bláir kubbar, dýr og sápukúlubraut.
15:00-18:00: Samfélagsopnun í Vélsmiðjunni. Búðareyri: Saga umbreytinga.
Ókeypis candy floss á meðan birgðir endast.
16:00 Sumaropnun Kiosk 108
Tónleikar með Elvar & Charles - Pool Guys & Miomantis.
Borgarfjörður
15:00 Stephan Stephensen opnar einkasýninguna True Believer í Glettu, Hafnarhúsi.