Fara í efni

42 ár hjá sveitarfélaginu

08.06.2021 Fréttir

Stefán Bragason lét af störfum hjá Múlaþingi um síðustu mánaðarmót eftir 42 ára starf hjá sveitarfélaginu. Mest allan tímann starfaði hann á skrifstofu þess að Lyngási 12 á Egilsstöðum, sem skrifstofustjóri og bæjarritari, eða í 39 ár, en í þrjú ár starfaði Stefán sem leiðbeinandi við Brúarásskóla sem þá var í Hlíðarhreppi. Sveitarfélögin sem Stefán hefur starfað fyrir eru orðin mörg en fyrst var það Hlíðarhreppur, síðan Egilsstaðahreppur, Egilsstaðabær, þá Austur-Hérað, Fljótsdalshérað og loks Múlaþing. Á myndinn má sjá Stefán og Björn Ingimarsson, bæjarstjóra, búa sig undir að fá sér tertusneið þegar samstarfsfólk Stefáns kvaddi hann á síðasta vinnudegi sínum.

Stefán Bragason og Björn Ingimarsson.
Stefán Bragason og Björn Ingimarsson.
Getum við bætt efni þessarar síðu?