Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) hefur birt drög að áætluðum eignamörkum um 1.160 jarða á Norðaustur- og Austurlandi. Þar á meðal eru jarðir í Múlaþingi. HMS sendi eigendum jarðanna bréf á Ísland.is þann 22. október síðastliðinn þar sem vakin var athygli á birtingu draganna.
Af þessu tilefni gefst landeigendum kostur á að hitta starfsmenn HMS í eigin persónu á Egilsstöðum dagana 9. og 10. nóvember næstkomandi og fá upplýsingar um verkefnið og drögin að eignamörkum.
Mikilvægt er að bóka fund fyrir fram með því að senda tölvupóst á jardir@hms.is eða hringja í síma 440 6400.
Drög að eignamörkum birt til skoðunar
Verkefnið er liður í umfangsmikilli vinnu HMS við að kortleggja eignamörk jarða um allt land og bæta upplýsingar í landeignaskrá. Drögin byggja á þeim heimildum sem liggja fyrir, svo sem landamerkjaskjölum, þinglýstum gögnum, kortum, örnefnalýsingum og staðháttum.
Landeigendur eru hvattir til að kynna sér drögin og nýta tækifærið til að ræða við starfsmenn HMS, fá skýringar og koma á framfæri upplýsingum sem gætu skipt máli við yfirferð gagnanna.
Mikilvægt að yfirfara upplýsingarnar
Um er að ræða áætluð eignamörk en ekki endanlega staðfestingu á þeim. Drögin breyta hvorki eignarrétti né þinglýstum réttindum. Þekking landeigenda á eigin landi, eldri merkjum og fyrirliggjandi gögnum getur þó skipt miklu máli við yfirferð og lokafrágang verkefnisins.
Landeigendur hafa sex vikur til að kynna sér drögin og koma á framfæri athugasemdum eða frekari upplýsingum.
Hvar má nálgast gögnin?
Drögin má skoða í kortavefsjá landeignaskrár HMS. Nánari upplýsingar um verkefnið og aðgang að gögnum má finna á vef HMS.
Fyrirspurnir og bókanir á fund með starfsmönnum HMS á Egilsstöðum 9. og 10. nóvember fara fram í gegnum netfangið jardir@hms.is eða í síma 440 6400.