Fara í efni

Aðalskipulag Múlaþings 2025-2045 – Auglýsing um niðurstöðu sveitarstjórnar

20.10.2026 Auglýsingar

Sveitarstjórn Múlaþings samþykkti þann 14. október 2026 nýtt aðalskipulag Múlaþings 2025-2045, ásamt fylgigögnum og skrá um vegi í náttúru Íslands.

Tillaga að skipulaginu var auglýst frá 22. maí 2026 til 13. júlí 2026 og bárust 38 athugasemdir og umsagnir, meðal annars frá íbúum og umsagnaraðilum. Sveitarstjórn féllst á afgreiðslu umhverfis- og framkvæmdaráðs á framkomnum umsögnum og athugasemdum og hefur skipulagstillagan verið uppfærð í samræmi við afgreiðsluna.

Samþykkt aðalskipulag hefur verið sent til Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar til staðfestingar. Öll skipulagsgögn, athugasemdir og viðbrögð við þeim má nálgast undir máli 453/2026 í Skipulagsgátt.

Þau sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til skipulagsfulltrúa.

Athygli er vakin á málskotsrétti samkvæmt 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og lögum nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Nánari upplýsingar um kærufrest og upphaf hans fara samkvæmt þeim lögum. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu skipulagsáætlana í B-deild Stjórnartíðinda.

Aðalskipulag Múlaþings 2025-2045 – Auglýsing um niðurstöðu sveitarstjórnar
Getum við bætt efni þessarar síðu?