Síðasta haust stóð til að klára bílaplan sem hannað hefur verið við Baug Bjólfs en því miður snjóaði snemma svo það náðist ekki. Einnig var óvenjulega snjóþungt og kalt vor og sumarbyrjun í ár svo snjó leysti mjög seint og gátu framkvæmdir því ekki hafist fyrr en nú.
Snjór hefur verið ruddur af veginum og staðnum þar sem bílaplanið á að vera og hefur Héraðsverk hafið framkvæmdir við planið en fyrsta áfanga mun ljúka á næstu 5-6 dögum.
Á næstu dögum verður jafnframt gönguleiðin frá bílaplaninu að Baugnum mokuð en enn er mikill snjór á þeirri leið.
Fært er á fjórhjóladrifnum bílum langleiðina að fyrirhuguðu bílaplani en eins og staðan er núna er mjög lítið um bílastæði og gönguleiðin frekar torfær. Því er biðlað til fólks að sýna örlítið meiri biðlund og gefa verktökum færi á að klára að útbúa planið þannig að hægt verði að hleypa á það umferð.
Í júlí og ágúst verður síðan gert hlé á framkvæmdum en stefnt er á að ljúka frágangi og framkvæmdum við planið og gera lagfæringar á gönguleiðinni og veginum upp eftir í september.