Góðar fréttir berast úr leikskólanum Tjarnarskógi en nú hefur tekist að ráða tvo nýja starfsmenn til leikskólans. Með þessum ráðningum skapast aðstæður til að hefja aðlögun þeirra barna sem hafa beðið eftir að komast í leikskólann.
Aðlögun barnanna hefst fimmtudaginn 12. nóvember næstkomandi. Til að byrja með verður boðið upp á dvalartíma frá kl. 9:00–14:00 en gert er ráð fyrir að hægt verði að lengja dvalartímann þegar líður á veturinn og aðstæður leyfa.
Mönnunarvandi í Tjarnarskógi hefur haft áhrif á innritun yngstu barnanna í haust og valdið fjölskyldum óþægindum og óvissu. Það er mikið ánægjuefni að nú sé hægt að taka næsta skref og bjóða börnin velkomin í leikskólann.
Múlaþing þakkar foreldrum fyrir þolinmæði og skilning á meðan unnið hefur verið að lausn málsins.