Fara í efni

AECO ráðstefna um ábyrgar leiðangurssiglingar á norðurslóðum

05.11.2026 Fréttir

Dagana 20.-21. október síðastliðinn sótti Greta Mjöll Samúelsdóttir ráðstefnu AECO í Ósló sem fulltrúi hafna Múlaþings. AECO (Association of Arctic Expedition Cruise Operators) eru alþjóðleg samtök fyrirtækja sem standa að leiðangurssiglingum á norðurslóðum. Markmið samtakanna er að stuðla að ábyrgri, öruggri og sjálfbærri ferðaþjónustu með áherslu á náttúruvernd, menningararfleifð og hagsmuni nærsamfélaga.

Fyrir íslenskar hafnir, þar á meðal hafnir Múlaþings, er AECO mikilvægur samstarfsvettvangur sem tengir saman útgerðir leiðangursskipa, hafnir, sveitarfélög og aðra hagaðila. Hafnir Múlaþings hafa nýtt sér þetta og eru til sérstakar leiðbeiningar fyrir hverja höfn (AECO guidelines) sem unnar voru í samvinnu við samfélagið á hverjum stað.

Megináhersla ráðstefnunnar, Arctic Expedition Cruise Week 2026, var á ábyrga þróun leiðangurssiglinga, áhrif ferðaþjónustunnar á nærsamfélög og umhverfi og aukið samstarf útgerða og áfangastaða.

Nærsamfélög og samfélagsleg áhrif ferðaþjónustu

Töluverð umræða var um hvernig tryggja megi að leiðangurssiglingar skili raunverulegum ávinningi til samfélaganna sem taka á móti skipunum. Rætt var um áhrif aukinnar ferðamennsku á lífsgæði íbúa og mikilvægi þess að samfélögin sjálf taki virkan þátt í þróun ferðaþjónustunnar. Meðal annars voru kynntar rannsóknir frá Austur-Grænlandi á áhrifum skemmtiferðaskipa á velferð nærsamfélaga.

Greta nefndi sérstaklega áhugavert erindi Saliks Parbst Frederiksen frá Grænlandi, þar sem hann lýsti mikilvægi góðra samskipta og samstarfs skipanna við lítil samfélög.

Umhverfismál og áhrif siglinga

Umhverfisáhrif siglinga voru einnig áberandi á ráðstefnunni, meðal annars undir yfirskriftinni One Ship, Two Footprints. Þar var fjallað um neðansjávarhljóð frá skipum og áhrif þeirra á lífríki sjávar, losun gróðurhúsalofttegunda, frárennslismál og hvernig nýta megi vísindarannsóknir til að bæta verklag útgerða.

Þróun markaðarins og staða norðurslóða

Farið var yfir þróun leiðangurssiglinga, stöðu markaðarins og helstu áskoranir á mismunandi svæðum norðurslóða. Fulltrúar frá Íslandi, Grænlandi, Noregi og Nunavut í Kanada kynntu stöðu ferðaþjónustunnar á sínum svæðum, rekstrarumhverfi og framtíðarhorfur.

Sigurður Jökull Ólafsson, framkvæmdastjóri Cruise Iceland, flutti erindi fyrir hönd Íslands og benti meðal annars á þær áskoranir sem hafa verið í rekstrarumhverfi íslenskrar skemmtiferðaskipaþjónustu.

Samstarf áfangastaða og útgerða

Sérstakur dagur, Meet the Destinations & Market Place, var helgaður tengslamyndun og samstarfi áfangastaða, útgerða og þjónustuaðila. Þar gafst tækifæri til að kynna áfangastaði, þjónustu og möguleika á samstarfi. Greta taldi viðburðinn bæði skemmtilegan og gagnlegan, ekki síst til að efla tengslanet og auka yfirsýn í starfi.

Í framhaldi fór fram aðalfundur Cruise Europe þar sem áherslan var á vetrarsiglingar. Þar komu fram áhugaverð sjónarmið um tækifæri og áskoranir sem fylgja því að lengja tímabilið þar sem Ísland tekur á móti skemmtiferðaskipum.

Mikilvægi staðbundinnar sérstöðu

Að mati Gretu eru þrjú atriði meginlærdómur ráðstefnunnar: auknar væntingar um samstarf við nærsamfélög, mikilvægi staðbundinnar og ábyrgrar upplifunar og tækifærin sem felast í beinum samskiptum við útgerðir og þá sem skipuleggja siglingaleiðir.

Þetta á sérstaklega vel við um Djúpavog og Borgarfjörð eystri þar sem smæð samfélaganna, staðbundin sérstaða og náttúruupplifun falla vel að þeim áherslum sem fram komu á ráðstefnunni. En fækkun leiðangurssiglinga hefur verið áþreifanlegust á þessum stöðum eftir breytingar á virðisaukaskatti á leiðangursskip.

Mynd: Sigurður Jökull Ólafsson framkvæmdastjóri Cruise Iceland flytur erindi á ráðstefnunni.
Mynd: Sigurður Jökull Ólafsson framkvæmdastjóri Cruise Iceland flytur erindi á ráðstefnunni.
Getum við bætt efni þessarar síðu?