Fara í efni

Aflétting á rýmingu

28.03.2023 Fréttir Seyðisfjörður

Aðstæður á austfjörðum með tilliti til snjóflóðahættu hafa verið metnar í dag af Veðurstofu Íslands í Neskupstað og á Seyðisfirði og Eskifirði.

Ákveðið hefur verið að aflétta rýmingu á hluta húsa í Neskaupstað og á Seyðisfirði sem rýmd voru í gær. Á Seyðisfirði er rýmingu aflétt á Gilsbakka 1 og Hamrabakka 8 til 12. Í Neskaupstað er rýmingu aflétt fyrir hús við: Urðarteigur 2,4,6,8,10,12,12a,14,16,18,20,22,26,28,37a Hlíðargata 12,14,16,16a,18,22,24,26,28,32,34 Blómsturvellir 1a,1,3,5,7,9,11,13,15,17,21,25,27,33,35,37,39,41,43,45,47,49 Víðimýri 1,3,5,7,9,11,12.

Vakin er athygli á að veðurspá fyrir seinnipart dags á morgun og fimmtudag er ekki góð. Því kann að koma til rýmingar að nýju.

Aflétting á rýmingu
Getum við bætt efni þessarar síðu?