Náttúruverndarstofnun hefur kynnt áform um friðlýsingu Hjálpleysu í Skriðdal í samstarfi við umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, Múlaþing og landeigendur svæðisins.
Hjálpleysa og nærliggjandi vatnasvið Gilsár á Völlum eru um 26 km² að stærð og hafa hátt verndargildi vegna sérstæðrar jarðfræði, fjölbreyttra jarðmyndana og litskrúðugs landslags. Svæðið hefur jafnframt mikið gildi fyrir útivist og fræðslu.
Unnið er að undirbúningi friðlýsingarinnar og eru þrír friðlýsingarflokkar til skoðunar. Endanleg ákvörðun um flokkun eða svæðaskiptingu liggur ekki fyrir.
Náttúruverndarstofnun gefur fólki kost á að koma á framfæri ábendingum eða athugasemdum við áformin og er umsagnarfrestur til 10. nóvember 2026.
Nánari upplýsingar um áformin, fyrirhugaða afmörkun svæðisins og hvernig koma má ábendingum á framfæri má finna í frétt á heimasíðu Náttúruverndarstofnunar.