Sveitarstjórn Múlaþings samþykkti á fundi sínum 15. apríl 2026 afslætti af gatnagerðargjöldum fyrir árið 2026, að tillögu umhverfis- og framkvæmdaráðs.
Markmið ákvörðunarinnar er að styðja við íbúða- og atvinnuuppbyggingu í sveitarfélaginu, koma til móts við mismunandi aðstæður á svæðunum og skapa hvata til jákvæðrar þróunar í byggð. Afslættirnir ná til íbúðarhúsalóða í helstu þéttbýliskjörnum Múlaþings, þar á meðal á Borgarfirði, Seyðisfirði, Djúpavogi, Hallormsstað, Eiðum, Egilsstöðum og í Fellabæ. Afslættir gilda á íbúðar-, atvinnu- og iðnaðarlóðum auk viðbygginga á þegar byggðum lóðum. Hér að neðan má sjá lista með nánari upplýsingum.
Í sumum tilvikum er veittur allt að 80% afsláttur af gatnagerðargjöldum, meðal annars til að styrkja brothættar byggðir, styðja við enduruppbyggingu og hvetja til nýrra húsbygginga þar sem eftirspurn er mikil.
Á Egilsstöðum er sérstaklega hvatt til uppbyggingar á uppfyllingarlóðum, auk þess sem afsláttur gildir einnig á lóðum á Hömrum. Í Fellabæ, Hallormsstað og á Eiðum er tekið mið af kostnaði vegna stórra lóða og fyrirliggjandi innviða með sérstökum afsláttum. Jafnframt er veittur afsláttur vegna viðbygginga á þegar byggðum íbúðarhúsalóðum á leigulóðum í Múlaþingi.
Nánari upplýsingar um lóðir, skilmála og umsóknarferli er að finna á heimasíðu Múlaþings: Byggingarlóðir | Múlaþing. Einnig er hægt að hafa samband við skipulagsfulltrúa á netfangið skipulagsfulltrui@mulathing.is fyrir frekari upplýsingar.
Íbúðarhúsalóðir
Borgarfjörður
Lausar eru 8 lóðir, fyrir allt að 14 íbúðir.
Afsláttur óbreyttur, 80% á öllum lausum lóðum.
- Rök: Á grundvelli brothættra byggða.
Seyðisfjörður
Lausar eru 15 lóðir, fyrir allt að 38 íbúðir.
Afsláttur óbreyttur, 80% á öllum lausum lóðum.
- Rök: Hvatning til húsbygginga eftir skriður.
Djúpivogur
Lausar eru 10 lóðir, fyrir allt að 14 íbúðir.
Afsláttur óbreyttur, 50% á öllum lausum lóðum.
- Rök: Hvatning til húsbygginga, mikil eftirspurn eftir húsnæði.
Hallormsstaður og Eiðar
Lausar eru 7 lóðir fyrir einbýlishús, þar af ein á Eiðum.
Afsláttur óbreyttur, 60% á öllum lausum lóðum.
- Rök: Hvatning til húsbygginga. Innviðir til staðar. Lóðir stórar og dýrar.
Egilsstaðir
Lausar eru 31 lóð, fyrir allt að 58 íbúðir.
Afsláttur óbreyttur, 60% á uppfyllingarlóðum.
- Flatasel 8
- Skógarsel 20
- Bjarkasel 10 og 12
Afsláttur óbreyttur, 30% á Hömrum (11 lóðir).
- Rök: Hvatning til húsbygginga í götunni og ná upp í þegar útlagðan kostnað.
Fellabær
Lausar eru 8 lóðir, fyrir allt að 25 íbúðir.
Afsláttur óbreyttur, 60% á uppfyllingarlóðum.
- Fífuhvammur 2 og 4
- Hamrafell 1
- Lágafell 3
Viðbyggingar á þegar byggðum íbúðarhúsalóðum
Afsláttur óbreyttur, 40% af öllum viðbyggingum á leigulóðum í Múlaþingi.
- Rök: Með þessu móti er leitast við að koma til móts við íbúa vegna húsnæðisskorts á svæðinu með því að búa til hvata til að nýta þegar byggðar lóðir betur.
Iðnaðar-, athafna-, verslunar- og þjónustulóðir
Valgerðarstaðir
Afsláttur 50%, hvatning til uppbyggingar atvinnustarfsemi.
- Selblá 1
- Selblá 2
- Valgerðarvegur 4
- Valgerðarvegur 6