Fara í efni

Álagning og innheimta fasteignagjalda hjá Múlaþingi fyrir árið 2024

29.01.2024 Fréttir

Álagningu fasteignagjalda í Múlaþingi er nú lokið og ættu kröfur vegna 1. gjalddaga að hafa verið birtar í heimabanka greiðenda.

Gjalddagar fasteignagjalda árið 2024 verða 9. Fyrsti gjalddagi er 1. febrúar og sá síðasti 1. október. Eindagi hverrar greiðslu er síðasti virki dagur viðkomandi mánaðar. Ef heildarupphæð gjalda á viðkomandi eign er undir 30.000 kr. innheimtist allt gjaldið á 1. gjalddaga.

Breytingar hafa orðið frá síðasta ári á fasteignamati eigna, mismiklar eftir íbúakjörnum og endurspeglast það í fasteignagjöldunum, sem flest reiknast út frá mati viðkomandi fasteignar og tilheyrandi lóðar. Upplýsingar um nýtt fasteignamat var gefið út af Húsnæðis- og mannvirkjastofnun síðastliðið sumar og er aðgengilegt á vefnum hms.is og einnig island.is

Álagningarseðlar fasteignagjalda frá Múlaþingi verða aðgengilegir á island.is og á vef Múlaþings mínar síður. Álagningarseðlar eða greiðsluseðlar verða ekki sendir út á pappír en hægt verður þó að prenta út fyrir þá sem sérstaklega óska eftir því.

Fyrirspurnir og eða athugasemdir skal senda á: fasteignagjold@mulathing.is.

Upplýsingar um álagningarhlutföll fasteignagjalda fyrir árið 2024 er að finna á mulathing.is á svæðinu gjaldskrár.

Álagning og innheimta fasteignagjalda hjá Múlaþingi fyrir árið 2024
Getum við bætt efni þessarar síðu?