Áætlunarferðir milli Egilsstaða og Djúpavogs hefjast í dag, föstudaginn 21. ágúst. Fyrsta ferð er frá Menntaskólanum á Egilsstöðum kl. 15:30.
Ferðirnar eru hugsaðar fyrir nemendur við Menntaskólann á Egilsstöðum frá Djúpavogi en öðrum gefst einnig kostur á að nýta sér ferðirnar. Skólanemar ganga þó fyrir.
Ferðirnar verða gjaldfrjálsar fyrir nemendur við Menntaskólann á Egilsstöðum búsetta í Múlaþingi gegn framvísun nemendaskírteinis. Aðrir greiða vægt fargjald.
Tímatafla er til viðmiðunar og tekur breytingum í takt við skóladagatal Menntaskólans á Egilsstöðum. Aðeins er ekið á starfstíma skólans skólaárið 2026 – 2027.
Um er að ræða tímabundið tilraunaverkefni og því kann að koma til breytinga yfir skólaárið.
Tímatafla:
| Stoppistöð | Föst. | Sun. | |
| Frá Egilsstöðum | Menntaskólinn á Egilsstöðum | 15:30 | 15:30 |
| Frá Djúpavogi | Við Bjargstún | 17:00 | 17:00 |
Fargjöld:
Almennt fargjald: 3.000.- kr.
Börn 0-13 ára: 1.500.- kr.
Eldir borgarar: 1.500.- kr.
Nemendur við ME búsettir í Múlaþingi: Frítt
GoEast annast ferðirnar.
Sími: 898-8044
Netfang: info@goeast.is