Skólahald
Skólar í Múlaþingi eru ýmist opnir eða lokaðir í dag 2. mars eftir aðstæðum. Skólahaldi var aflýst í Brúarásskóla og bæði í leik- og grunnskóla á Borgarfirði og einnig öllum skólaakstri úr dreifbýli í Fellaskóla og Egilsstaðaskóla. Á Djúpavogi er vetrarfrí í dag svo ekki þarf að gera breytingar á skólastarfinu þar sökum veðurs en Leikskólinn Bjarkatún á Djúpavogi mun loka kl. 12 í dag.
Foreldrar eru beðnir um að fylgjast með skilaboðum frá skólum þar sem skólastarf er í gangi því ef veður versnar mikið gæti þurft að senda börn heim og þá getur verið mikilvægt að þeim sé fylgt heim.
Í slæmu veðri er metið í hverjum byggðarkjarna hvort skólahaldi er aflýst eða skólum haldið opnum. Ef skólahaldi er ekki aflýst er það lagt í hendur foreldra og forráðamanna að meta hvort börn séu send í skóla miðað við aðstæður og öryggi á hverjum stað.
- Skólinn tekur alltaf tillit til veðurs við skráningu mætingar.
- Ef foreldrar/forráðamenn meta aðstæður þannig að ekki sé óhætt að barn sæki skóla vegna veðurs, er mikilvægt að tilkynna skóla það.
Ef veður versnar meðan skóli stendur yfir
Ef veður versnar eða veðurútlit er slæmt á meðan skóli er starfandi getur verið nauðsynlegt að grípa til eftirfarandi ráðstafana:
- Nemendur eru sendir fyrr heim, þó aðeins í samráði við foreldra/forráðamenn.
- Nemendum er ekki hleypt út nema í fylgd fullorðinna.
Gefið hefur verið út að vegna veðurs muni strætó ekki ganga eftir kl. 14:05. Vegna þessa mun skóla hjá mið- og unglingastigi í Fellaskóla ljúka kl. 14:00 og þeir nemendur sem taka strætó muni því ná síðustu ferð úr Fellabæ (fer kl. 14:05). Opnun frístundar óbreytt að svo stöddu. Sama gildir hjá Egilsstaðaskóla.
Athugið að aðstæður gætu breyst skyndilega og því hvetjum við ykkur til að fylgjast með frekari tilkynningum.
Skólaakstur
Allur skólaakstur í Múlaþingi fellur niður mánudaginn 2. mars vegna veðurs og færðar.
Strætó milli Egilsstaða og Fellabæjar
Strætó ók í morgun en akstur eftir hádegi kemur til með að falla niður gangi veðurspá eftir.
Frekari tilkynningar verða gefnar út í kringum hádegið. Farþegar eru beðnir um að fylgjast með tilkynningum þar sem staða ferða getur breyst með skömmum fyrirvara.
Strætó á Egilsstöðum mun fara einn hefðbundinn hring kl. 14:00, upphafs- og endastöð er Einhleypingur við Brekkubrún.
Bókasöfn
Bókasafn Múlaþings á Djúpavogi verður lokað í dag vegna veðurs. Tekin verður ákvörðun um aðra staði eftir því hvernig veðrið þróast.
Engar sektir falla á daginn í dag á neinni starfsstöð Bókasafns Múlaþings.
Sorphirða
Sorphirða fellur niður á Egilsstöðum og í Fellabæ í dag sem og í dreifbýli Fljótsdalshéraðs.
Stefnt er að því að sorphirða fari af stað á morgun en sorphirðusvæðum í dreifbýli verður breytt út frá dagatali eftir aðstæðum.
Frekari upplýsingar verða veittar á morgun, þriðjudag.
Söfnunarstöðvar
Söfnunarstöðin á Egilsstöðum verður lokuð í dag, mánudag, vegna appelsínugulrar veðurviðvörunar.
Aðrar söfnunarstöðvar eru lokaðar í dag.
Hafnir
Smábátaeigendur eru beðnir um að huga að bátum sínum í höfnum áður en veðrið skellur á.
Almennt til íbúa
Íbúar eru beðnir um að huga vel að lausamunum og gera varúðarráðstafanir til að fyrirbyggja foktjón.
Tilkynning frá Lögreglunni á Austurlandi
Lögreglan á Austurlandi hvetur þá sem ekki þurfa að vera á ferðinni til að vera heima. Þeir sem þurfa að vera á ferðinni fylgist vel með veðurspá og færð á vegum.
---
Fréttin verður uppfærð eftir því sem upplýsingar um röskun á opnunartíma stofnana berast.