Fara í efni

Askja vel vöktuð

22.02.2023 Fréttir

Almannavarnanefnd Austurlands hefur fundað reglulega frá því í mars 2022 með starfsmönnum Veðurstofu vegna jarðhræringa og landriss við Öskju sem hófst í ágúst 2021. Að auki sendir Veðurstofan vikulega upplýsingapóst um stöðu eldstöðva á landinu með niðurstöðum mælinga og vöktunar. Almannavarnir og sveitarfélög eru því vel upplýst um stöðu mála.

Svæðið allt kringum Öskju er vaktað með jarðskjálfta- og aflögunarmælum Veðurstofu og fylgst með hreyfingum allan sólarhringinn.

Í síðustu viku fór hópur sérfræðinga Veðurstofunnar og Jarðvísindastofnunar HÍ í könnunarflug yfir Öskju með TF-SIF flugvél Landhelgisgæslunnar, vegna bráðnunar íss á Öskjuvatni. Í kjölfar þessa flugs sendi Veðurstofan út pistil á heimasíðu sinni þar sem staðan var rakin. Engin skýr merki um aukna virkni í Öskju | Fréttir | Veðurstofa Íslands (vedur.is)

Fundur var í gær með starfsmönnum Veðurstofu og almannavarnanefnd á Austurlandi. Þar kom meðal annars fram að búist sé við því að aðdragandi að gosi yrði allnokkur, með aukinni virkni í daga eða vikur. Ekki er þó hægt að útiloka að fyrirvarinn yrði styttri. Engin skýr merki eru enn um að virkni sé að aukast.

Askja er virk eldstöð og í ljósi landriss og jarðhræringa er ekki óvarlegt að íbúar, sveitarfélög og fyrirtæki séu við því búin að gos geti hafist. Leiðbeiningar frá ríkislögreglustjóra og almannavörnum vegna hættu á heilsutjóni vegna gosösku má finna hér.

Ábendingar til almannavarna á Austurlandi eða fyrirspurnir er hægt að senda á netfangið austurland@logreglan.is.

Askja vel vöktuð
Getum við bætt efni þessarar síðu?