Íbúar sem hita hús sitt með rafmagni eða olíu, utan hitaveitusvæða, geta átt rétt á niðurgreiðslu húshitunarkostnaðar frá ríkinu. Nýlegar tölur benda til þess að hluti íbúa Múlaþings, sérstaklega í dreifbýli, njóti ekki niðurgreiðslunnar þótt þeir eigi rétt á henni. Fyrir rafhitað heimili getur munurinn numið hundruðum þúsunda króna á ári.
Hverjir eiga rétt?
Eigendur eða leigjendur íbúðarhúsnæðis þar sem viðkomandi er með skráð lögheimili. Íbúðin þarf að hafa eigið fastanúmer og húsið þarf að vera:
- hitað með rafmagni, þar með talið með varmadælu, utan hitaveitusvæðis,
- hitað með olíu eða
- tengt kyntri hitaveitu.
Athugið að búseta í húsinu dugar ekki ein og sér. Lögheimili þarf að vera skráð þar.
Kirkjur, safnahús, félagsheimili og björgunarsveitarhús geta einnig átt rétt á niðurgreiðslu.
Skref 1: Skoðaðu rafmagnsreikninginn þinn áður en þú sækir um
Margir eru nú þegar með niðurgreiðslu og þurfa ekkert að gera. Kannaðu því fyrst rafmagnsreikninginn þinn:
- Efst á reikningnum, í línunni með upplýsingum um mælinn, kemur fram í hvaða taxtaflokki þú ert. Heimili í taxtaflokki B eða C eiga rétt á niðurgreiðslu.
- Niðurgreiðsluliður. Neðar á reikningnum, í kaflanum „Jöfnunar- dreifbýlisframlag og niðurgreiðslur“, á að vera lína sem heitir „Niðurgreiðslur“ með frádreginni upphæð (mínustölu).
- Ertu í taxtaflokki B eða C og línan „Niðurgreiðslur“ sést á reikningnum? Þá ertu þegar með niðurgreiðslu og þarft ekki að sækja um.
- Ertu í taxtaflokki B eða C en línan „Niðurgreiðslur“ sést ekki? Þá skaltu sækja um niðurgreiðslu, sjá skref 2.

Efst á reikningnum sést taxtaflokkurinn (hér C). Neðst í kaflanum „Jöfnunar- dreifbýlisframlag og niðurgreiðslur“ sést línan „Niðurgreiðslur“ með frádreginni upphæð. Ef sú lína er á reikningnum þínum ertu þegar með niðurgreiðslu.
Skref 2: Sæktu um hjá Umhverfis- og orkustofnun
Ef línan „Niðurgreiðslur“ sést ekki á reikningnum er sótt um rafrænt hjá Umhverfis- og orkustofnun á gagnaform.uos.is með rafrænum skilríkjum. Ekki þarf að sækja um aftur á meðan lögheimili helst óbreytt en tilkynna þarf stofnuninni ef aðstæður breytast. Niðurgreiðslan er dregin frá orkureikningnum.
Í fjölbýli eða tvíbýli, þar sem rafmagn er ekki sérmælt, getur húsfélag sótt um fyrir hönd allra eigenda.
Ertu með varmadælu eða íhugar að fá þér slíka?
Hægt er að sækja um eingreiðslu vegna kaupa á varmadælu. Hún getur numið allt að helmingi kostnaðar.
Nánari upplýsingar
Umhverfis- og orkustofnun, sími 569 6000 (virka daga klukkan 8:30–15:00), uos.is/orka/orkuskipti/hushitun/nidurgreidslur. Stofnunin er með skrifstofu á Tjarnarbraut 39B á Egilsstöðum.