Fara í efni

Auglýsing um móttöku framboðslista vegna sveitarstjórnarkosninga í Múlaþingi 16. maí 2026

26.03.2026 Auglýsingar

Framboðsfrestur vegna sveitarstjórnarkosninga, sem fram fara 16. maí 2026, rennur út klukkan 12:00 á hádegi föstudaginn 10. apríl 2026. Kosið verður til sveitarstjórnar í Múlaþingi. Framboðslistar skulu hafa borist yfirkjörstjórn Múlaþings áður en framangreindur framboðsfrestur rennur út.

Yfirkjörstjórn Múlaþings tekur á móti framboðsgögnum föstudaginn 10. apríl næstkomandi milli klukkan 10:00 og 12:00 í fundarsal skrifstofu Múlaþings að Lyngási 12 á Egilsstöðum. Klukkan 13:00, á sama stað, hefst fundur um yfirferð framboðslista.

Framboðslistunum skal fylgja skrifleg yfirlýsing allra þeirra sem á listunum eru um að þeir hafi gefið samþykki sitt fyrir því að nöfn þeirra séu á listunum, undirrituð eigin hendi eða með fullgildri rafrænni undirskrift. Gæta skal þess að tilgreina með skýrum hætti fullt nafn frambjóðanda, kennitölu hans og lögheimili, þannig að enginn vafi leiki á því hver sé í kjöri.

Eyðublað fyrir framboðslista er að finna á vef landskjörstjórnar.

Framboðslistunum skal einnig fylgja skrifleg yfirlýsing frá kjósendum í Múlaþingi um stuðning, að lágmarki 40 meðmælendur og að hámarki 80 meðmælendur. Hver kjósandi má einungis mæla með einum lista við hverjar kosningar. Frambjóðendur geta ekki verið meðmælendur eigin framboðs.

Þá skal með hverjum framboðslista fylgja skrifleg tilkynning frá frambjóðendum listans um hverjir séu umboðsmenn listans. Upplýsingar um nafn, fæðingardag, netfang og símanúmer umboðsmanns skal fylgja tilkynningunni ásamt skriflegu samþykki hans. Samþykkið getur verið undirritað eigin hendi eða með fullgildri rafrænni undirskrift. Sýnishorn af tilkynningu um framboð og umboðsmenn má finna á vef landskjörstjórnar.

Nánari upplýsingar um söfnun meðmæla og skil framboða og framboðslista má finna í reglugerð nr. 254/2024 og þá má einnig finna nánari upplýsingar og eyðublöð vegna skila á framboðum á vef landskjörstjórnar.

Múlaþingi, 26. mars 2026

Yfirkjörstjórn í Múlaþingi

Stefán Þór Hauksson formaður
Arna Soffía Dal Christiansen
Björn Aðalsteinsson

Auglýsing um móttöku framboðslista vegna sveitarstjórnarkosninga í Múlaþingi 16. maí 2026
Getum við bætt efni þessarar síðu?