Fara í efni

Auglýsing um utankjörfundaratkvæðagreiðslu

24.04.2026 Borgarfjörður Djúpivogur Egilsstaðir Seyðisfjörður Kosningar Auglýsingar

Laugardaginn 16. maí 2026 (kjördagur) fara fram tvennar kosningar í Múlaþingi:

  1. Sveitarstjórnarkosningar: kjör fulltrúa í sveitarstjórn Múlaþings
  2. Heimastjórnarkosningar: íbúakosning um fulltrúa í heimastjórnum Borgarfjarðar, Djúpavogs, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðar. Nánari upplýsingar um heimastjórnarkosningar má finna hér.

Hér að neðan eru upplýsingar um hvar og hvenær hægt verður að neyta atkvæðisréttar í utankjörfundaratkvæðagreiðslu fyrir kjördag 16. maí 2026.

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst fimmtudaginn 30. apríl 2026. Athugið að staðsetningar utankjörfundaratkvæðagreiðslu geta verið ólíkar eftir því um hvaða kosningu ræðir.

Heimastjórnarkosningar:

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar fer fram á öllum fjórum skrifstofum sveitarfélagsins frá 30. apríl 2026 til og með 15. maí 2026:

  • Borgarfjörður eystri: Fjarðarborg, 2. hæð
           Opnunartími: Mánudaga til fimmtudaga 10-14, föstudaga 10-12
  • Djúpivogur: Geysir, Bakka 1
           Opnunartími: Mánudaga til fimmtudaga 10-14, föstudaga 10-12
  • Egilsstaðir: Lyngás 12
           Opnunartími: Mánudaga til fimmtudaga 8-15:30, föstudaga 8-13:30
  • Seyðisfjörður: Hafnargata 44
           Opnunartími: Mánudaga til fimmtudaga 10-14, föstudaga 10-13:30

Kjósendur sem eiga ekki heimangengt eða eru fjarstaddir geta óskað eftir að fá kjörgögn vegna heimastjórnarkosninga send með pósti. Í slíkum tilvikum skal senda beiðni á netfangið mulathing@mulathing.is, og ber kjósandinn ábyrgð á því að koma atkvæði sínu til skila á réttan stað. Þessi möguleiki gildir aðeins um heimastjórnarkosningar en ekki sveitarstjórnarkosningar.

Sveitarstjórnarkosningar:

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar fer fram sem hér segir:

  • Egilsstaðir og Seyðisfjörður: Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hófst 17. apríl 2026 og stendur yfir til og með 15. maí 2026, og fer fram á skrifstofum sýslumanns að Lyngási 15 (Egilsstaðir) og Bjólfsgötu 7 (Seyðisfjörður).
  • Borgarfjörður eystri og Djúpivogur: Hægt verður að kjósa utan kjörfundar í sveitarstjórnarkosningum á skrifstofum sveitarfélagsins í Fjarðarborg, 2. hæð (Borgarfjörður) og Geysi, Bakka 1 (Djúpivogur) frá 30. apríl 2026 til og með 15. maí 2026.
Auglýsing um utankjörfundaratkvæðagreiðslu
Getum við bætt efni þessarar síðu?