Fara í efni

Bakkagarður á lokametrunum

04.11.2026 Fréttir Seyðisfjörður

Bygging ofanflóðavarnargarða undir Bjólfinum á Seyðisfirði er langt komin en framkvæmdir við Bakkagarð eru nú á lokametrunum.

Stefnt er að því að koma síðustu grindunum fyrir á næstu dögum en aðeins á eftir að setja upp fjórar grindahæðir. Garðurinn mun að lokum ná rétt upp fyrir höfuð þeirra sem vinna við verkið þar sem þeir standa á meðfylgjandi mynd.

Þetta er þriðji og síðasti garðurinn undir Bjólfinum en framkvæmdum við Fjarðargarð og Öldugarð var áður að mestu lokið.

Þótt þessum áfanga framkvæmda sé senn að ljúka verða verklok í verkinu ekki fyrr en á næsta ári.

Bakkagarður á lokametrunum
Getum við bætt efni þessarar síðu?