Fara í efni

Barnalán í Tjarnarskógi

28.10.2026 Fréttir Egilsstaðir

Það má með sanni segja að barnalán sé í leikskólanum Tjarnarskógi á Egilsstöðum þessa dagana. Þar ríkir mikil gleði yfir því að stór hluti starfsmannahópsins, alls 11 manns, er í fæðingarorlofi eða eiga von á barni á næstunni.

Þessi ánægjulegu tíðindi hafa vissulega haft áhrif á mönnun leikskólans og skapað áskoranir við að manna allar stöður ásamt því að halda uppi daglegu starfi. Þrátt fyrir það er fyrst og fremst gleði yfir þessum tímamótum hjá starfsfólki leikskólans. Það er dýrmætt að sjá fjölskyldur stækka og nýja einstaklinga bætast í hópinn.

Starfsfólki er jafnframt þakkað fyrir samheldni, sveigjanleika og þá fagmennsku sem það sýnir í daglegu starfi. Í Tjarnarskógi er lögð áhersla á gleði, virðingu, samvinnu og fagmennsku. Þar verður haldið áfram að vinna saman að því að skapa börnum hlýlegt, öruggt og gott umhverfi þar sem þau fá að njóta sín og þroskast.

Það er því óhætt að segja að nóg sé um að vera í Tjarnarskógi bæði í leikskólastarfinu og í fjölskyldulífi starfsfólksins!

Mynd: Vinstra megin Rósa Dóra Sigurðardóttir, Sædís Eiríksdóttir, Elva Dögg Ingvarsdóttir, Aðalheiðu…
Mynd: Vinstra megin Rósa Dóra Sigurðardóttir, Sædís Eiríksdóttir, Elva Dögg Ingvarsdóttir, Aðalheiður Sjöfn Helgadóttir, Christina Chovanová og Guðrún Sól Jónsdóttir.
Í myndatökuna komust ekki Sigmar Hákonarson, Karen Dögg Vilhjálmsdóttir, Martyna Manuela Reimus, Rannveig Björgvinsdóttir og Zdenka Dvoráková.
Getum við bætt efni þessarar síðu?