Útsýnispallurinn Baugur Bjólfs hefur verið tilnefndur til Dezeen verðlaunanna, virtra alþjóðlegra verðlauna á sviði arkitektúrs, hönnunar og innanhússhönnunar.
Baugur Bjólfs er hringlaga útsýnispallur sem situr á Bæjarbrún í suðurhlíð fjallsins Bjólfs á Seyðisfirði. Baugurinn er í 640 metra hæð yfir sjávarmáli og frá honum er einstakt útsýni yfir Seyðisfjörð. Fjallið og baugurinn draga nafn sitt af Bjólfi, landnámsmanni sem getið er í Landnámu og sagan segi að hafi verið heygður í fjallinu.
Framkvæmdir við bauginn hófust árið 2024 að undangenginni hönnunarsamkeppni. Aðalhönnuðir voru þær Ástríður Birna Árnadóttir og Stefanía Helga Pálmarsdóttir frá Arkibygg Arkitektum en verkefnið var unnið í samvinnu við Önnu Kristínu Guðmundsdóttur og Kjartan Mogensen landslagsarkitekta, Auði Hreiðarsdóttur frá ESJA ARCHITECTURE og Arnar Björn Björnsson frá Exa Nordic sem sá um burðarvirkjahönnun.
Baugurinn var tilbúinn síðasta haust og Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri Múlaþings segir hann strax vera orðinn mikið aðdráttarafl: "Við óskum hönnuðum Baugs Bjólfs innilega til hamingju með þessa viðurkenningu. Baugurinn er magnaður áfangastaður og við heyrum það frá gestum okkar sem hafa heimsótt staðinn í sumar. Enn er þó nokkuð í land varðandi aðgengi að þessum glæsilega áningarstað en okkar helsti draumur er að hægt verði að koma upp kláfferju neðan úr bænum á Seyðisfirði upp að Baugnum. Vonandi tekst okkur að finna fjárfesta með okkur í það verkefni."
Þetta er í níunda sinn sem Dezeen verðlaunin verða afhent en þau hafa á þeim tíma fest sig í sessi sem mikilvægur mælikvarði á framúrskarandi hönnun og eftirsótt viðurkenning fyrir arkitekta og hönnuði. Baugur Bjólfs er tilnefndur í flokki smærri mannvirkja.