Fara í efni

Bókasafn Múlaþings hlýtur styrk fyrir Sögusmiðju

04.06.2026 Fréttir

Sunnudaginn 31. maí tók Kolbrún Erla Pétursdóttir, forstöðumaður Bókasafns Múlaþings, við styrk úr Bókasafnasjóði að upphæð 1,1 milljón króna fyrir verkefnið Sögusmiðju.

Sögusmiðjur fyrir börn og ungmenni

Sögusmiðja er skapandi ritlistasmiðja fyrir börn og unglinga þar sem rithöfundar leiða ritlistarsmiðjur fyrir tvo aldurshópa, 9–12 ára og 12–15 ára. Þátttakendur kynnast aðferðum sagnagerðar, vinna að eigin textum og fá innsýn í hvernig sögur verða til í skapandi og hvetjandi umhverfi.

Markmið verkefnisins er að hvetja börn og ungmenni til sköpunar, efla áhuga þeirra á lestri og ritun og veita þeim tækifæri til að þróa eigin hugmyndir og frásagnir.

Ævar Þór kemur austur í haust

Þegar hefur verið samið við Ævar Þór Benediktsson um að leiða ritlistasmiðjur fyrir börn á aldrinum 9–12 ára á öllum þremur bókasöfnum Múlaþings. Ævar verður í sveitarfélaginu dagana 21.–23. september en nánari dagskrá verður kynnt síðar.

Þá mun unglingabókahöfundur stýri ritlistasmiðju fyrir eldri aldurshópinn á Egilsstöðum síðar í haust.

Við erum afar ánægð með að geta boðið börnum og ungmennum í Múlaþingi upp á heimsóknir frá vinsælum barna- og ungmennabókahöfundum. Vonandi verða smiðjurnar til þess að efla enn frekar áhuga þeirra á lestri, ritun og skapandi starfi,“ segir Kolbrún Erla Pétursdóttir, forstöðumaður Bókasafns Múlaþings.

Austurland fékk ríflega níu milljónir

Múlaþing var ekki eina austfirska sveitarfélagið sem hlaut styrk við úthlutunina. Bókasöfn Fjarðabyggðar fengu tveggja milljóna króna styrk úr Bókasafnasjóði fyrir verkefnið Bókasöfn á menningarhátíðum Fjarðabyggðar.

Jafnframt tók Austurbrú við sex milljóna króna styrk úr Barnamenningarsjóði fyrir verkefnið Undur og furða á vegum BRAS, barna- og ungmennahátíðar Austurlands.

Alls runnu því ríflega níu milljónir króna til menningarverkefna á Austurlandi við úthlutun sjóðanna.

Sveitarfélagið óskar öllum styrkþegum innilega til hamingju með styrkina.

Bókasafn Múlaþings hlýtur styrk fyrir Sögusmiðju
Getum við bætt efni þessarar síðu?