Fara í efni

Brák íbúðafélag í samstarfi við Múlaþing auglýsir íbúðir til leigu við Markarland 10, Djúpavogi

27.07.2026 Djúpivogur Auglýsingar

Brák íbúðafélag hses. auglýsir eftir umsóknum um leigu á íbúðum við Markarland 10, Djúpavogi.

Um er að ræða:

  • 2ja herbergja íbúðir, um 56 m² að stærð, leiguverð er 162.500 kr.
  • 3ja herbergja íbúðir, um 78 m² að stærð, leiguverð er 225.500 kr.

Leiguverð er án hita og rafmagns.

Íbúðirnar verða tilbúnar til afhendingar frá og með 1. ágúst 2026.

Brák íbúðafélag er rekið án hagnaðarmarkmiða. Markmið félagsins er að bæta húsnæðisöryggi tekju- og eignaminni fjölskyldna og einstaklinga.

Um útleigu íbúðanna gilda lög um almennar íbúðir nr. 52/2016. Samkvæmt lögum og reglugerðum eru skilgreind tekju- og eignamörk, sem og viðmið um greiðslubyrði leigu. Uppbygging íbúðanna er í samræmi við húsnæðisáætlun sveitarfélagsins og er gott dæmi um samstarfsverkefni þar sem stuðningur sveitarfélags og ríkis er nýttur til uppbyggingar íbúðarhúsnæðis utan höfuðborgarsvæðisins.

Umsókn um leigu

Umsóknir skulu sendar á netfangið: brakibudafelag@brakibudafelag.is

Með umsókn skulu fylgja:

  • upplýsingar um hagi og húsnæðisstöðu umsækjenda,
  • afrit af síðasta skattframtali,
  • afrit af staðgreiðsluskrá ársins.

Umsóknarfrestur er til og með 31. júlí 2026.

Brák íbúðafélag hses. úthlutar íbúðum þegar farið hefur verið yfir allar umsóknir.

Brák íbúðafélag í samstarfi við Múlaþing auglýsir íbúðir til leigu við Markarland 10, Djúpavogi
Getum við bætt efni þessarar síðu?