BRAS, menningarhátíð barna og ungmenna á Austurlandi, hefst 21. september næstkomandi og stendur til 11. október. Þema hátíðarinnar í ár er Undur og furða og viðburðirnir opna undraheim sirkuslista, sæskrímsla, trölla, myndlistar, tónlistar, bókmennta og leikhúss svo eitthvað sé nefnt.
Þetta er í níunda sinn sem hátíðin er haldin en sem fyrr samanstendur hún bæði af fræðsluverkefnum sem boðið er upp á í leik- og grunnskólum á skólatíma og opnum viðburðum sem börn og ungmenni geta notið með fjölskyldu og vinum. Dagskráin er með glæsilegasta móti en yfir 30 opnir viðburðir verða í boði um allt Austurland frá miðjum september og fram í miðjan október. Markmið hátíðarinnar er sem fyrr að börn og ungmenni á Austurlandi hafi aðgang að faglegum og fjölbreyttum listviðburðum og fái sjálf tækifæri til skapandi þátttöku.
Fjörugar upplifanir og fjölbreytt sköpun
Einn af hápunktum BRAS í ár er ný sirkussýning úr smiðju sirkuslistahópsins Hringleiks sem ber heitið Shjówmen en hún er innblásin af fiskveiðum og veröld sjómennskunnar. Sýningin verður bæði sýnd í Sláturhúsinu á Egilsstöðum og í íþróttahúsinu á Reyðarfirði helgina 26.-27. september. Þá mun rithöfundurinn Ævar Þór Benediktsson heimsækja bókasöfnin í Múlaþingi, Skoppa og Skrítla leggja leið sína í Fjarðabyggð, skrímsli verða til umfjöllunar á Minjasafni Austurlands á Egilsstöðum, í Skaftfelli á Seyðisfirði verður hægt að kynna sér undraheima prentlistarinnar og í Sköpunarmiðstöðinni á Stöðvarfirði verður bæði hægt að skapa úr pappamassa og brauðdeigi svo fátt eitt sé nefnt. Þá mun fjöllistakonan Kateřina Blahutová koma við í sex bæjum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar og bjóða upp á sæskrímslasmiðju þar sem börn teikna sæskrímsli sem listakonan glæðir lífi í sýningarrýminu jafnóðum.
Allar nánari upplýsingar um opna viðburði BRAS má meðal annars finna á Facebook-síðu hátíðarinnar, á viðburðadagatali á vef Múlaþings og miðlum viðkomandi stofnana.
Fræðsla í gegnum listir mikilvægur þáttur
Undirbúningur og listræn stjórnun hátíðarinnar er nú í höndum menningarmiðstöðvanna fjögurra á Austurlandi: Sláturhússins á Egilsstöðum, Menningarmiðstöðvar Fjarðabyggðar, Skaftfells á Seyðisfirði og Sköpunarmiðstöðvarinnar á Stöðvarfirði en auk þeirra standa fleiri stofnanir, félagasamtök og listafólk fyrir viðburðum.
Fræðsla í gegnum listir hefur alltaf verið stór hluti af Bras. Menningarmiðstöðvarnar standa árlega fyrir metnaðarfullum fræðsluverkefnum sem skólunum standa til boða og á því er engin undantekning í ár. Að þessu sinni býður Sláturhúsið öllum 6. bekkingum í landshlutanum upp á sirkuslistanámskeið undir stjórn sirkuslistahópsins Hringleiks og Skaftfell stendur fyrir myndlistarnámskeiði sem ber heitið Hvaðan kemur confetti? þar sem Hildigunnur Birgisdóttir leiðir nemendur á yngsta stigi inn í töfraheim lita og skrauts. Sarah Steinar heimsækir svo leikskólana með tónlistarleik.
Þora! Vera! Gera!
BRAS hátíðin var fyrst haldin árið 2018 og hefur frá upphafi verið unnin í samstarfi listafólks, menningarstofnana, sveitarfélaga og Austurbrúar. Angar hennar teygja sig um allt Austurland en lögð er áhersla á að listviðburðir fari fram á sem flestum stöðum á svæðinu og fræðsluverkefni menningarmiðstöðvanna standa alltaf öllum skólum til boða. Aðgengi allra barna og ungmenna að listum og menningarviðburðum og ekki síst þátttaka þeirra í sköpun og upplifun er leiðarljós hátíðarinnar og lögð er áhersla á inngildingu, þátttöku, túlkun og innblástur og að hvetja börn til að: Þora! Vera! Gera!
Samstarfs- og styrktaraðilar menningarmiðstöðvanna við framkvæmd BRAS 2026 eru:
List fyrir alla, Austurbrú, Múlaþing, Fjarðabyggð, Vopnafjarðarhreppur, Uppbyggingarsjóður Austurlands, Barnamenningarsjóður, Alcoa, Landsvirkjun og Héraðsprent.