Fara í efni

Brauðtertan 2021

14.06.2021 Fréttir

Viltu spreyta þig í brauðtertugerð? Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs og Tehúsið blása til brauðtertu-samkeppni á sjálfan þjóðhátíðardaginn 17. júní.

Veitt verða verðlain fyrir bragðbestu, fallegustu og frumlegustu brauðtertuna, og í dómnefnd sitja valinkunnir brauðtertusmakkarar.

Keppning fer fram á Tehúsinu 17. júní klukkan 16:00. Gott er að skrá sig til leiks á mmf@mulathing.is en einnig er öllum frjálst að mæta á staðinn klukkan 15:00 og skrá sig þar en keppendur þurfa að mæta með framlag sitt á Tehúsið ekki seinna en kl 15:30.

Brauðtertan 2021
Getum við bætt efni þessarar síðu?