Fara í efni

Brennur og flugeldasýningar á Gamlárskvöld

27.12.2022 Fréttir

Múlaþing óskar íbúum og landsmönnum öllum gleðilegrar hátíðar og farsældar á komandi ári.

Múlaþing, í samstarfi við Björgunarsveitir og íþróttafélögin Neista og Huginn, stendur að brennum og flugeldasýningum í öllum kjörnum Múlaþings og hér má sjá tímasetningar:

Borgarfjörður
Klukkan 20:30: Áramótabrenna við norðurenda flugvallar.

Djúpivogur
Klukkan 17:00: Áramótabrenna á Hermannastekkum.
Klukkan 17:15: Flugeldasýning á sama stað.

Egilsstaðir
Klukkan 16:30: Áramótabrenna í Tjarnargarði.
Leikfélag Menntaskólans á Egilsstöðum stýrir samsöng og von er á gestum ofan úr fjöllum.
Smellið hér til að hlaða niður söngbók!
Klukkan 17:00: Flugeldasýningu skotið af Þverklettum.

Seyðisfjörður
Klukkan 16:30: Áramótabrenna í Langatanga.
Klukkan 17:00: Flugeldasýning á sama stað.
Athugið að flugeldasýningu er ekki skotið frá Lónsleiru eins og kom fram í Dagskránni heldur Langatanga.

Múlaþing biðlar til fólks að fara varlega í kringum flugelda og eld. Æskilegt er að hafa hlífðarbúnað eins og hlífðargleraugu og hjálma. Eldfim efni er ágætt að hafa í huga og varast ætti flísefni á höndum og við andlit. “Skemmtum okkur varlega”

*Athugið að ekki er leyfilegt að skjóta upp flugeldum við brennur, einungis stjörnuljós eru leyfileg. Fólk er hvatt til að skilja bílinn eftir heima og alls ekki keyra undir áhrifum áfengis eða annarra vímugjafa.

 

Múlaþing wishes you a joyful holiday and a happy new year

Múlaþing, in collaboration with the local rescue teams in each town and sports teams Neisti and Huginn, organizes bonfires and fireworks displays for New Year’s Eve. Schedule is here below:

Borgarfjörður
20:30, Bonfire at the north end of the airport.

Djupivogur
17:00, Bonfire at Hermannastekkir.
17:15, Fireworks at Hermannastekkir.

Egilsstaðir
16:30, Bonfire in Tjarnargarður.

Community singing and visitors from the mountains are expected.
Press here for the songbook of Icelandic christmas songs!

17:00, Fireworks launched from Þverklettar.

Seyðisfjörður
16:30, Bonfire in Langitangi.
17:00, Fireworks in Langitangi.

Múlaþing asks people to be careful around fireworks and fire. It is advisable to have protective equipment such as goggles and helmets. Please avoid fleece fabric on hands and face and be aware of other flammable clothing.

Have fun and stay safe.

*Please note that fireworks are not allowed at bonfires, only sparklers are allowed. People are encouraged to leave their cars at home and never drive under the influence of alcohol or other intoxicants.

Brennur og flugeldasýningar á Gamlárskvöld
Getum við bætt efni þessarar síðu?