Fara í efni

Breytingar á skipulagi og starfsumhverfi leikskóla í Múlaþingi

14.10.2026 Fréttir Borgarfjörður Djúpivogur Egilsstaðir Seyðisfjörður

Sveitarstjórn Múlaþings hefur samþykkt tillögur að breytingum á skipulagi og starfsumhverfi leikskóla sveitarfélagsins. Markmiðið er að bæta starfsaðstæður barna og starfsfólks, styrkja faglegt starf, stuðla að stöðugri mönnun og skapa skýrara og sjálfbærara leikskólastarf. Breytingarnar taka til starfsaðstæðna, mönnunarviðmiða, menntunar starfsfólks, skipulags vinnutíma, skráningardaga og gjaldskrár leikskólanna og verða innleiddar í áföngum.

Bætt starfsaðstaða og mönnun

Árið 2027 verður gerð úttekt á vinnuumhverfi leikskólanna með áherslu á hljóðvist, lýsingu og loftgæði og í kjölfarið verður unnin áætlun um úrbætur. Jafnframt verða viðmið um fjölda barna á hvern starfsmann endurskoðuð í tveimur áföngum.

Menntun starfsfólks og faglegt starf

Stuðningur við starfsfólk í leikskólakennaranámi og íslenskunámi verður aukinn.

Tíminn frá klukkan 9:00 til 14:00 verður skilgreindur sem tími markviss fagstarfs, þar sem áhersla verður lögð á skipulagt starf með börnum, þótt faglegt starf fari fram allan leikskóladaginn.

Breytt skipulag vinnutíma

Markmiðið er að draga úr álagi, bæta skipulag og stuðla að stöðugri mönnun. Starfsfólk í fullu starf getur unnið 38 stunda vinnuviku og safnað upp tíu dögum sem teknir verða út á skráningardögum yfir skólaárið.

Skráningardagar

Skráningardagar verða 15 á skólaárinu 2026–2027 og tengjast haustfríi, jólaleyfi, vetrarfríi, dymbilviku og fimmtu viku sumarleyfis. Þessa daga þurfa foreldrar að skrá börn sín sérstaklega og greiða 2.900 kr. fyrir hvern dag, innifalið í því er dvalargjald og fæði. Opnun verður háð fullnægjandi mönnun og að lágmarki fimm skráðum börnum. Í Tjarnarskógi þurfa fimm börn að vera skráð í hverri álmu.

Breytingar á leikskólagjöldum

Innleiddur verður stigskiptur afsláttur fyrir börn sem dvelja sjö klukkustundir á dag eða skemur.

Dvalartími yngstu barnanna, sem hefja leikskólagöngu á öðru aldursári, verður frá klukkan 8:00 til 15:00, með möguleika á 15 mínútna viðbót eftir aðstæðum hvers leikskóla.

Sérstaða leikskólans Glaumbæjar á Borgarfirði og leikskólans í Brúarásskóla

Glaumbær á Borgarfirði verður áfram gjaldfrjáls og lokar klukkan 14:00 á föstudögum. Lokað verður milli jóla og nýárs og í dymbilviku en boðið upp á skráningardaga í vetrarfríi og fimmtu viku sumarleyfis gegn 2.900 kr. gjaldi á dag.

Brúarásskóli er samrekinn leik- og grunnskóli þar sem leikskólinn fylgir skóladagatali grunnskólans. Opnunartími er klukkan 8:30 til 16:00 mánudaga til fimmtudaga og til klukkan 14:10 á föstudögum. Lokað er í jóla-, vetrar- og páskafríum auk um tíu vikna sumarleyfis. Sérstök gjaldskrá gildir fyrir leikskólann sem tekur mið af þessu fyrirkomulagi.

Innleiðing og kostnaður

Breytingarnar verða innleiddar í áföngum. Áætlaður viðbótarkostnaður vegna breytinganna er 19 milljónir króna árið 2027 og 34 milljónir árið 2028, auk kostnaðar við endurbætur á vinnuumhverfi.

Með breytingunum er stigið mikilvægt skref í átt að bættu starfsumhverfi, öflugra faglegu starfi og auknum fyrirsjáanleika fyrir börn, starfsfólk og fjölskyldur í Múlaþingi.

Breytingarnar og framkvæmd þeirra verða kynntar foreldrum, starfsfólki og öðrum hagaðilum á næstu vikum.

Breytingar á skipulagi og starfsumhverfi leikskóla í Múlaþingi
Getum við bætt efni þessarar síðu?