Fara í efni

Breyttur akstur strætó í Fellabæ

10.07.2026 Tilkynningar Egilsstaðir

Akstursleið strætó í Fellabæ mun taka breytingum vegna gatnaframkvæmda í Lagarfelli. Upphafs- og endastöð verður við Fellaskóla / Hádegishöfða og verður það jafnframt eina stoppið í Fellabæ í sumar.

Breytt akstursáætlun tekur gildi mánudaginn 13. júlí og mun gilda út sumarið.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Breyttur akstur strætó í Fellabæ
Getum við bætt efni þessarar síðu?