Fara í efni

Breyttur brottfarartími ferða milli Egilsstaða og Djúpavogs

28.08.2026 Fréttir Djúpivogur

Brottfarartíma áætlunarferða milli Egilsstaða og Djúpavogs hefur verið breytt eftir að góðar ábendingar bárust sveitarfélaginu varðandi tengingu við flug um Egilsstaðaflugvöll.

Rútan mun stoppa við flugstöðina í tengslum við komu „kaffivélarinnar“ frá Reykjavík sem lendir klukkan 15:35 á föstudögum og sunnudögum. Rútan leggur af stað til Djúpavogs klukkan 16:00.

Brottför frá Djúpavogi verður klukkan 17:30 frá Bjargstúni á meðan Öxi er greiðfær og áætlaður komutími á Egilsstaðaflugvöll um klukkan 19:00. Kvöldvélin til Reykjavíkur fer klukkan 19:45.

Brottfarartími frá Djúpavogi verður klukkan 18:10 í vetur þegar fara þarf um firðina.

Alla jafna eru ferðirnar á föstudögum og sunnudögum en brottfarardagar koma fram á akstursdagatali sem tekur mið af skóladagatali Menntaskólans á Egilsstöðum.

Frekari upplýsingar um ferðirnar og almenningssamgöngur í Múlaþingi má finna á heimasíðu Múlaþings.

Stutt um ferðirnar:

  • Ferðirnar eru fyrst og fremst hugsaðar fyrir nemendur við Menntaskólann á Egilsstöðum frá Djúpavogi.
  • Ferðirnar eru opnar fyrir öll en nemendur við ME njóta forgangs.
  • Um er að ræða tilraunaverkefni til eins árs eða yfir skólaár ME 2026 – 27.
Breyttur brottfarartími ferða milli Egilsstaða og Djúpavogs
Getum við bætt efni þessarar síðu?