Árleg brotajárnssöfnun í Múlaþingi fer fram í ágúst á svæði 2 að þessu sinni: Egilsstaðir, Fellabær, Jökuldalur, Fell, Skriðdalur og Vellir.
Öllum á þessu svæði býðst að nýta sér þjónustuna gjaldfrjálst: einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum í þéttbýli og dreifbýli. Nú er því kjörið tækifæri til tiltektar og er hvatt til þátttöku.
Brotajárnssöfnunin hefst þriðjudaginn 18. ágúst og er nauðsynlegt að skrá sig hjá sveitarfélaginu fyrir þann tíma.
Hægt er að skrá sig eða fá frekari upplýsingar með því að senda tölvupóst á umhverfisfulltrui@mulathing.is eða hringja í síma 4 700 700.
Fram þarf að koma: nafn, símanúmer, heimilisfang, lýsing á brotajárni og áætlað magn. Taka þarf sérstaklega fram ef um er að ræða fyrirferðarmikið brotajárn, svo sem stór og þung tæki.
Hverju er verið að safna í brotajárnshreinsuninni?
Öllum málmum og brotajárni, til dæmis bárujárni, bílhræjum, vélum og girðinganeti án óhreininda. Auk þess má losa sig við hjólbarða/dekk.
Hvað þarf ég að gera ef ég vil taka þátt?
- Skrá þig hjá sveitarfélaginu.
- Safna brotajárni saman á aðgengilegan stað fyrir söfnunarbíl.
Söfnunarbíllinn er útbúinn krana og getur því tekið mest efni sjálfur. Mikilvægt er að brotajárn sé laust við rusl og óhreinindi en verktaka er heimilt að synja hirðu ef svo er ekki eða ef aðgengi er ábótavant.
Hvað með bílhræ?
Nauðsynlegt er að afskrá ökutæki áður en söfnun fer fram. Það er gert rafrænt á island.is/skilavottord
Eigandi bíls sem fer í endurvinnslu fær endurgreitt skilagjald frá fjársýslu ríkisins sem er í dag 30.000 krónur. Þetta á þó ekki við um bíla sem eru skráðir fyrir 1980.
Frekari upplýsingar um afskráningu ökutækja má nálgast hjá Úrvinnslusjóði og hjá Hringrás.
Hjálpumst að við að halda sveitarfélaginu hreinu og snyrtilegu.
