Fara í efni

Byggðarmerki fyrir Múlaþing ákveðið

11.12.2020 Fréttir

Á fundi sveitarstjórnar Múlaþings 9. desember síðast liðinn var samþykkt tillaga dómnefndar sem skipuð var um byggðamerki fyrir sveitarfélagið. Sjötíu tillögur bárust um merkið í samkeppni sem auglýst var í lok október. Merkið sem varð fyrir valinu er eftir Grétu V. Guðmundsdóttur, hönnuð.

Í umsögn dómnefndar um merkið segir: „Merkið er nútímalegt og klassískt í senn. Það er sett fram í fjórskiptum skildi með sterkum, einföldum, táknrænum línum. Einn fjórðungur merkisins eru útlínur Múlakolls sem er fremsti hluti Þingmúla sem var einn helsti samkomu- og þingstaður Austfirðinga til forna og eru Múlasýslurnar nefndar eftir honum. Þar liggja og rætur nafns hins nýja sveitarfélags. Annar fjórðungur táknmálsins er eins konar framtíðartákn hins óborna, endurnýjunar og hringrásar. Horft er til dagsbrúnar frá Héraðsflóa og Borgarfirði eystri í áttina þaðan sem sólin rís. Þriðji fjórðungurinn er horn hreindýrsins sem tákna mikilfengleika og tign, greind og útsjónarsemi. Það undirstrikar sérstöðu svæðisins. Það fjórða eru svo tindarnir, útverðirnir, hinir tignarlegu fjallgarðar Austurlands, útlínur Búlandstinds, gætu allt eins verið með góðum vilja hinn heilagi Strandatindur. Þrátt fyrir skiptar skoðanir sem vörðuðu meira tilfinningar og smekk var nefndin ásátt um að hið útvalda merki gætum við öll staðið á bak við, og að það þjónaði tilgangi sínum á sterkan hátt. Það sýnir sameiningu og styrk.“

Dómnefnd skipaði þau Elín Elísabet Einarsdóttir, Ingvi Örn Þorsteinsson, Guðmundur Oddur Magnússon, Unnar Erlingsson og Þór Vigfússon.

Í bókun sveitarstjórnar kemur fram að hún þakkar öllum þeim sem tóku þátt í samkeppninni fyrir innsendar tillögur og jafnframt er dómnefndinni þökkuð góð vinna.

Byggðarmerki fyrir Múlaþing ákveðið
Getum við bætt efni þessarar síðu?