Fara í efni

Óskað eftir þátttakendum á Cittaslow sunnudegi

26.08.2022 Fréttir Djúpivogur

Cittaslow sunnudagur er haldinn ár hvert, í öllum aðildarbæjum Cittaslow, síðasta sunnudag í september.
Í ár verður Cittaslow sunnudaginn 25. september í Löngubúð og er stefnt á að halda Cittaslow kynningarmarkað þar sem einstaklingar, fyrirtæki og félagasamtök á Djúpavogi geta tekið frá borð þar sem fólk kynnir sína starfsemi til leiks, leyfir öðrum að smakka eða prófa og hægt er að selja varning og vörur.

Markmiðið er að kynna staðbundna framleiðslu, menningu, starfsemi og innviði í Cittaslow þorpinu okkar á einu bretti milli klukkan 13 og 17.
Fjölbreytileikinn í bænum er mikill og honum ber að hlúa að og varðveita. 

Þau sem hafa áhuga á að panta borð á Cittaslow daginn í Löngubúð þurfa að senda póst til heiddis.gudmundsdottir@mulathing.is eða hringja í
síma 470 0758 fyrir 16. september.

Nánari dagskrá verður kynnt síðar.

Ljósmynd: Óskar Ragnarsson
Ljósmynd: Óskar Ragnarsson
Getum við bætt efni þessarar síðu?