Fara í efni

Dagar myrkurs gengnir í garð

26.10.2026 Fréttir Borgarfjörður Djúpivogur Egilsstaðir Seyðisfjörður

Dagar myrkurs hefjast í dag og standa fram til 1. nóvember. Fjöldi smárra sem stórra viðburða verður í boði um allt Austurland. 

Dagar myrkurs er sameiginleg byggðahátíð Austurlands sem haldin er ár hvert síðustu vikuna í október. Markmið hátíðarinnar er að draga fram tækifærin sem felast í myrkrinu og skapa vettvang fyrir ímyndunarafl, samveru og fjölbreyttar upplifanir. 

Íbúar, félagasamtök, fyrirtæki og stofnanir hafa tekið höndum saman og útkoman er fjölbreytt dagskrá þar sem áhersla er lögð á samveru og upplifun. Meðal viðburða má nefna sögustund við varðeld á vegum Bókasafns Múlaþings á Egilsstöðum,  draugagöngu og hryllings zumba á Djúpavogi,  leit að Jólanadda og Jólaskottu á Borgarfirði, myrkraþrautir í Tjarnargarðinum á Egilsstöðum og margt fleira.

Hægt er að nálgast upplýsingar um viðburði í Múlaþingi í viðburðadagatalinu á vef sveitarfélagsins og upplýsingar um viðburði á öðrum stöðum á Austurlandi má nálgast á á vefnum east.is. 

Mynd: Austurbrú / Ragnhildur Aðalsteinsdóttir
Mynd: Austurbrú / Ragnhildur Aðalsteinsdóttir
Getum við bætt efni þessarar síðu?