Fara í efni

Dagforeldrar óskast á Héraði

15.10.2026 Egilsstaðir Auglýsingar

Hefur þú áhuga á að starfa með ungum börnum og skapa þeim gott umhverfi til að vaxa og dafna? Hefur þú hugleitt að gerast dagforeldri?

Múlaþing leitar að áhugasömum einstaklingum sem vilja gerast dagforeldrar á Héraði. Dagforeldrar gegna mikilvægu hlutverki í umönnun og uppeldi ungra barna og skapa þeim öruggt og hlýlegt umhverfi.

Sveitarfélagið veitir starfsleyfi til dagforeldra, hefur eftirlit með starfsemi þeirra og sér um endurgreiðslur vegna þeirra barna sem eru í gæslu hverju sinni.

Ef þú hefur áhuga á að gerast dagforeldri eða vilt fá nánari upplýsingar hafðu samband við Mörtu Wium Hermanns­dóttur, leikskólafulltrúa Múlaþings, í síma 4 700 700 eða með tölvupósti á marta.wium.hermannsdottir@mulathing.is.

Dagforeldrar óskast á Héraði
Getum við bætt efni þessarar síðu?