Varptími fugla er hafinn og eru hunda- og kattaeigendur hvattir til að sýna sérstaka aðgát á þessum árstíma. Hundar og kettir geta haft neikvæð áhrif á fuglalíf í nágrenni við þéttbýli og því skiptir ábyrg hegðun eigenda miklu máli.
Fuglalíf er mikilvægur hluti af náttúru og nærumhverfi okkar og með einföldum aðgerðum geta gæludýraeigendur lagt sitt af mörkum til að vernda fugla á viðkvæmum tíma ársins.
Kettir geta verið öflugar veiðiklær en eigendum þeirra ber að taka tillit til fuglalífs á varptíma. Kattaeigendur eru hvattir til að setja litríka kraga á ketti sína eða hengja bjöllur á hálsólar þeirra. Þá eru þeir einnig hvattir til að halda köttum innandyra að næturlagi til að draga úr tjóni af þeirra völdum yfir varptímann.
Hundaeigendur eru jafnframt minntir á að hafa hunda sína í taumi og sleppa þeim ekki lausum á eða nærri varpsvæðum fugla. Lausaganga hunda er óheimil innan þéttbýlis nema á afmörkuðum hundasvæðum. Þá er mikilvægt að eigendur hirði ávallt upp eftir hunda sína og sýni góða umgengni í nærumhverfinu.
Gæludýraeigendum ber að sjá til þess að dýr þeirra valdi ekki ónæði, hávaða, óþrifnaði eða tjóni. Ef slíkt á sér stað ber eigendum að grípa til viðeigandi ráðstafana.
Að lokum er bent á að allir hundar og kettir innan þéttbýlis í Múlaþingi eru skráningarskyldir hjá sveitarfélaginu. Hægt er að skrá og afskrá gæludýr á Mínum síðum Múlaþings.