Fellaskóli og Egilsstaðaskóli tóku þátt í sitt hvorum riðlinum í Skólahreysti í gær en keppnin fór fram á Akureyri. Bæði lið stóðu sig afar vel og Egilsstaðaskóli gerði sér lítið fyrir og sigraði sinn riðil. Þau eru þar með komin í úrslitakeppnina sem fer fram í Reykjavík 23. maí.
Lið Fellaskóla var skipað þeim Arnari Tinna Ævarssyni, Kolbeini Þór Jónssyni, Emmu Sólrúnu Lynn Schnabel, Eddu Lind Einarsdóttur Hallbach, Önnu Freyju Tupaarnaq Sigvarðsdóttur og Baldri Þór Sigurgeirssyni. Liðið leysti sínar þrautir með prýði en Emma Sólrún sigraði báðar sínar greinar, tók flestar armbeygjur og hékk lengst allra í sínum riðli.
Í liði Egilsstaðaskóla voru Guðfinnur Snær Þorlaugsson, Andrea Ýr Benediktsdóttir, Kristín Indíana Káradóttir, Hinrik Nói Guðmundsson, Edda Pétursdóttir og Aron Daði Einarsson. Keppnin var æsispennandi en Egilsstaðaskóli og Síðuskóli voru jafnir í 1. til 2. sæti þegar kom að hraðaþrautinni. Þar náði Egilsstaðaskóli góðum tíma sem skilaði honum fyrsta sæti riðilsins.
Fjölmenn stuðningslið fylgdu báðum skólum og hvöttu þau sitt fólk vel til dáða.
Báðum skólum er óskað til hamingju með frábæran árangur og liði Egilsstaðaskóla góðs gengis í úrslitakeppninni.