Tíu austfirskum ungmennum stendur til boða að taka þátt í Erasmus+ ungmennaskiptaverkefni um rokk og þungarokk sem fram fer í Oulu í Finnlandi dagana 19.–25. október. Verkefnið er ætlað ungmennum á aldrinum 17/18–25 ára sem hafa grunn í tónlist, kunna að spila á hljóðfæri eða syngja og hafa brennandi áhuga á tónlist.
Verkefnið er unnið í samstarfi við ungmennasamtökin Rock Camp sem komu austur með vinnusmiðjur fyrr í vetur. Samtökin starfa víða í Finnlandi og hafa að leiðarljósi að efla og styrkja ungt fólk í gegnum tónlist, einkum rokk og þungarokk.
Verkefnið fer fram á ensku og er einstakt tækifæri fyrir þátttakendur til að læra af færum og reyndum atvinnutónlistarmönnum ásamt því að vinna með finnskum ungmennum að tónlistarsköpun og -flutningi.
Verkefnið er styrkt af Erasmus+ og því þátttakendum að kostnaðarlausu.
Verkefnið er með öllu áfengis- og vímuefnalaust og er gerð krafa um að þátttakendur séu virkir og virði reglur og gildi verkefnisins.
Umsóknarfrestur er til 20. maí. Umsóknum skal skila í formi stutts kynningarmyndbands þar sem eftirfarandi kemur fram:
- Nafn
- Aldur (verkefnið er ætlað 18 ára og eldri en umsóknir frá 17 ára einstaklingum sem njóta stuðnings og samþykkis foreldra verða teknar til greina)
- Búseta
- Reynsla/menntun/þátttaka í tónlist
- Ástæður fyrir áhuga á þátttöku í verkefninu
- Hvað viðkomandi telur sig færa verkefni sem þessu
Umsóknir skulu sendast á hildur.bergsdottir@mulathing.is
Valið verður úr umsóknum í samráði við tónlistarfólk og leiðbeinendur Rock Camp og því mikilvægt að vanda til verka.