Fara í efni

Engin virk COVID smit eru í fjórðungnum

24.02.2021 Fréttir

Gott ástand er í samfélaginu, nær engin ný smit að greinast. Veiran er þó enn til staðar að mati okkar færustu sérfræðinga. Bólusetningar ganga vel og tilslakanir innanlands taka gildi í dag samkvæmt nýrri reglugerð.

Margt það sem við höfum lagt á okkur á COVID tímanum, s.s. takmarkanir á hópamyndun og breytt hegðun, er talið skýra fækkun öndunarvegasýkinga árið 2020 sem aftur er talin ástæða mikið minni sýklalyfjanotkunar það ár, sjá talnabrunn landlæknis. Þá hefur hin árlega inflúensa ekki herjað á okkur enn.

Gleðjumst því, enda tilefni til, en höldum vöku okkar.

Förum sem fyrr eftir gildandi leiðbeiningum og reglum. Reynum líka í sameiningu að draga lærdóm af COVID-reynslunni, íhugum hvort og hvað af því sem hún kenndi okkur við viljum þróa og jafnvel festa í sessi í samfélaginu. Við erum á þessum góða stað vegna samráðs og samvinnu okkar allra. Höldum því áfram og alla leið.

Engin virk COVID smit eru í fjórðungnum
Getum við bætt efni þessarar síðu?