Fara í efni

Álagning fasteignagjalda í Múlaþingi

25.01.2023 Fréttir

Álagningu fasteignagjalda í Múlaþingi er nú lokið og ættu kröfur vegna 1. gjalddaga að birtast í heimabanka greiðenda í síðasta lagi í byrjun næstu viku.

Gjalddagar fasteignagjalda árið 2023 verða 9. Fyrsti gjalddagi er 1. febrúar og sá síðasti 1. október. Eindagi hverrar greiðslu er síðasti virki dagur viðkomandi mánaðar. Ef heildarupphæð gjalda á viðkomandi eign er undir 30.000 kr. innheimtist allt gjaldið á 1. gjalddaga.

Töluverðar breytingar virðast hafa orðið frá síðasta ári á fasteignamati eigna á sumum svæðum sveitarfélagsins og endurspeglast það í fasteignagjöldunum, sem flest reiknast út frá mati viðkomandi fasteignar og tilheyrandi lóðar. Upplýsingar um nýtt fasteignamat eigna var sent frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun á miðju síðastliðnu sumri og er aðgengilegt á www.island.is.

Álagningarseðlar fasteignagjalda frá Múlaþingi verða aðgengilegir á island.is og á Mínar síður Múlaþings. Ekki er gert ráð fyrir að senda útprentaða álagningarseðla á pappír til greiðenda, en hægt verður þó að prenta þá út fyrir þá sem sérstaklega óska eftir því.

Fyrirspurnir og eða athugasemdir skal senda á: fasteignagjold@mulathing.is eða hringja í síma 470-0700.

Upplýsingar um álagningarhlutföll fyrir árið 2023 er að finna hér.

Álagning fasteignagjalda í Múlaþingi
Getum við bætt efni þessarar síðu?