Fara í efni

Varúðarráðstafanir vegna snjóflóðahættu

30.03.2023 Fréttir Seyðisfjörður

Gert er ráð fyrir að úrkoma á Austurlandi nái hámarki síðar í dag og allar varúðarráðstafanir því enn til staðar vegna snjóflóðahættu meðal annars.

Verið er að skoða mögulega opnun milli Neskaupstaðar og Eskifjarðar um Fannardal sem og frá Reyðarfirði yfir á Egilsstaði um Fagradal. Báðir þessir vegarkaflar eru lokaðir sem stendur. Vegna mögulegrar úrkomu í formi rigningar eru íbúar beðnir um að huga að niðurföllum vegna vatnsaga. Fundur er með Veðurstofu og almannavörnum klukkan 11 í dag þar sem staðan verður metin. Íbúar eru beðnir um að huga vel að tilkynningum í fjölmiðlum, á vef almannavarna, Veðurstofu og Vegagerðar sem og á fésbókarsíðum lögreglu og sveitarfélaga.

Varúðarráðstafanir vegna snjóflóðahættu
Getum við bætt efni þessarar síðu?