Fara í efni

Ertu búinn að sækja um íþrótta- og tómstundastyrk?

12.03.2021 Fréttir

Nú fer hver að verða síðastur til að sækja um styrki til íþrótta- og tómstundastarfs með umsóknarfrest til og með 15. mars 2021.

Múlaþing veitir styrki til einstaklinga, hópa, félagssamtaka, fyrirtækja og stofnana til íþrótta- og tómstundatengdra verkefna. Umsækjendur um styrk verða að tengjast Múlaþingi með búsetu, eða með því að viðburðurinn fari fram í Múlaþingi eða feli í sér kynningu á íþrótta- og tómstundastarfi í Múlaþingi.
Afgreiðsla styrkumsókna mun liggja fyrir í apríl 2021. Styrkir eru einungis greiddir út á því ári sem þeir eru veittir og færast ekki á milli ára nema sérstaklega sé um það samið.

Næst verður auglýst í september, með umsóknarfrest 15. október 2021.

Umsækjendur er hvattir til að kynna sér reglur um úthlutun íþrótta- og tómstundastyrkja fjölskylduráðs Múlaþings. Sótt er um styrkinn í gegnum þjónustugátt sveitarfélagsins.

Ertu búinn að sækja um íþrótta- og tómstundastyrk?
Getum við bætt efni þessarar síðu?