Fara í efni

Fáðu þér G-Vítamín!

09.02.2021 Fréttir

Frítt inn á valin söfn í samstarfi við sveitarfélög um land allt miðvikudaginn 10. febrúar. Geðhjálp stendur fyrir átakinu G-Vítamín á þorra þar sem verndandi þáttum geðheilsu er gefinn gaumur. Alla daga þorrans er bent á eina aðgerð á dag sem nota má sem G-vítamín.

Miðvikudaginn 10. febrúar er G-vítamín dagsins að „Gleyma sér“. Því er tilvalið að fara á safn sem er góð leið til að gleyma sér og njóta menningar og listar í leiðinni. Listinn yfir söfn birtist ekki á gvitamin.is fyrr en samdægurs.

Endilega nýtið tækifærið, ef ekki á þeim degi, þá þegar hentar. Það er verðmætt að leyfa sér að gleyma sér. Frekari upplýsingar um söfn sem taka þátt á gvitamin.is. Það þarf ekki að skrá sig til að fá aðgang að söfnunum.

Viltu meira G-Vítamín?
Á gvitamin.is er hægt að skrá sig og fá heilræði dagsins send í tölvupósti allan þorra ásamt möguleika á fjöldanum öllum af geðbætandi vinningum sem dregnir eru út daglega.

Fáðu þér G-Vítamín!
Getum við bætt efni þessarar síðu?