Fara í efni

Félagsmiðstöðvar Múlaþings á Landsmóti Samfés 2026

26.10.2026 Fréttir Djúpivogur Egilsstaðir Seyðisfjörður

Helgina 9.-11. október var Landsmót Samfés haldið í Reykjanesbæ þar sem fleiri en 450 ungmenni á vegum rúmlega 80 félagsmiðstöðva komu saman. Þar af voru 19 fulltrúar frá félagsmiðstöðvunum Zion á Djúpavogi, Lindinni á Seyðisfirði og Nýung á Egilsstöðum.

Landsmót Samfés er þríþætt. Á föstudagskvöldinu var byrjað á því að kjósa inn nýja meðlimi í ungmennaráð Samfés sem er stærsta lýðræðislega kjörna ungmennaráð landsins og samanstendur af 27 meðlimum. Ungmennaráðið er mikilvæg rödd bæði innan sem utan Samfés samtakanna þegar kemur að málefnum ungmenna í landinu. Tvö ungmenni í Múlaþingi voru kosin í ungmennaráð Samfés, Pétur Stefán Jónsson úr Zion til tveggja ára og Bára María Þorgeirsdóttir í eitt ár. Kvöldinu lauk síðan með árlegri kvöldvöku sem ungmennaráð Samfés skipulagði.

Laugardagurinn fór í smiðjuvinnu þar sem allir fóru í eina umræðusmiðju og eina verklega smiðju. Í smiðjunum fengu ungmennin tækifæri til þess að tileinka sér ýmislegt sem þau taka síðan með sér heim í sína félagsmiðstöð. Dæmi um smiðjur sem ungmennin okkar sóttu eru „speed friending“, fjármálafræðsla, Crêpe 101, teiknimynda + myndasögu sull og margt fleira. Laugardagurinn endaði síðan á balli í Hljómahöllinni þar sem Herra Hnetusmjör tryllti lýðinn.

Á sunnudeginum stóð ungmennaráð Samfés fyrir Landsþingi Samfés. Þema þingsins í ár var fjölbreytileikinn. Á þinginu er ungmennunum skipt í hópa þar sem umræður fara fram og punktar settir á blað. Niðurstöður þingsins eru síðan teknar saman og þær afhentar háttsettum ráðamönnum landins. Skoðunum unga fólksins er þannig beint inn í stjórnsýslu landsins.

Emil Smári er einn þeirra félagsmiðstöðvastarfsmanna sem fóru með hópnum í ferðina. Hann segir: „Það var ótrúlega gaman að fara með ungmennunum okkar í ferðina, sem stóðu sig með prýði. Smiðjurnar veita unglingunum frábært tækifæri til þess að afla sér þekkingar og miðla henni áfram í félagsmiðstöðvunum og ungmenni sveitarfélagsins eru lukkuleg með að Pétur og Bára fái að láta raddir sínar heyrast í ungmennaráðinu. Það var líka svo gaman að sjá unglingana okkar kynnast jafningjum alls staðar af landinu en einnig að sjá hvað þau nýttu vel þetta dýrmæta tækifæri til þess að styrkja tengslin sín á milli, þvert á mismunandi byggðarkjarna sveitafélagsins okkar.

Mynd fengin af heimasíðu Samfés.
Mynd fengin af heimasíðu Samfés.
Getum við bætt efni þessarar síðu?