Fara í efni

Fimm verkefni í Múlaþingi hljóta styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða

05.05.2026 Fréttir

Atvinnuvegaráðherra úthlutaði nýlega styrkjum úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða fyrir árið 2026. Markmið sjóðsins er að stuðla að uppbyggingu, viðhaldi og verndun ferðamannastaða, stuðla að jafnari dreifingu ferðamanna um landið og styðja við svæðisbundna þróun.

Við úthlutun var að þessu sinni sérstök áhersla lögð á öryggi á ferðamannastöðum. Heildarfjárhæð styrkja nam nær 490 milljónum króna en af þeim 18 verkefnum sem fengu úthlutað styrk í ár renna fimm þeirra til verkefna í Múlaþingi.

Í flokki áhugamannafélaga:

  • 3.600.000 kr. til Ferðafélags Fljótsdalshéraðs vegna göngubrúar yfir Breiðuvík á Víknaslóðum.

Í flokki landeigenda/landeigendafélaga:

  • 35.000.000 kr. til Marteins Óla Aðalsteinssonar vegna bætts öryggis og náttúruverndar við austanvert Stuðlagil.
  • 35.522.011 kr. til Marteins Óla Aðalsteinssonar vegna bætts aðgengis niður að Jöklu við austanvert Stuðlagil.

Múlaþing hlaut einnig tvo styrki:

  • 29.000.000 kr. vegna bílastæðis og gönguleiðar upp að Baugi Bjólfs.
  • 18.000.000 kr. vegna endurbóta á gönguleið upp að Fardagafossi.
Mynd: Baugur Bjólfs
Mynd: Baugur Bjólfs
Getum við bætt efni þessarar síðu?